Nafn mannsins sem lést í Breiðholti
Maðurinn sem lést í átökum við gatnamót Austurbergs og Hraunbergs í Breiðholti aðfaranótt 1. nóvember hét Alexander Prince.
Vísir greinir frá þessu en Alexander var 34 ára og lætur hann eftir sig tvo syni.
Útför hans fór fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í gær.
Einn maður situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins og greindi Vísir frá því í dag – og hafði eftir heimildum – að hann hefði játað að hafa lagt til Alexanders með hníf. Hann er sagður bera fyrir sig neyðarvörn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗