Náðu mögnuðum myndum af einni furðulegustu skepnu hafsins

Vísindamönnum í Kaliforníu tókst á dögunum að ná einstaklega skýrum myndum af einum furðulegasta fiski hafsins.

Fiskurinn, sem ber fræðiheitið Macropinna microstoma, vekur athygli fyrir sérkennilegt útlit sitt. Efri hluti höfuðsins er gegnsær og í gegnum hann má sjá stór, græn augu fisksins sem geta hreyfst í ólíkar áttir.

Frá þessu er greint á vísindavefnum Science Daily.

Vísindamenn við hafrannsóknastofnunina Monterey Bay Aquarium Research Institute (MBARI) voru við rannsóknir um 90 kílómetra undan ströndinni þegar þeir komu auga á fiskinn á um 600 metra dýpi.

Fundurinn vakti mikla eftirvæntingu um borð í rannsóknarskipinu og flykktust vísindamenn og áhafnarmeðlimir inn í stjórnstöð skipsins til að berja þessa óvenjulegu skepnu augum.

Sérkennilegt útlit fisksins kemur sér vel við fæðuleit í myrkri undirdjúpanna. Hann getur legið nánast hreyfingarlaus í sjónum með augun upp á við og skimað eftir bráð. Þegar hann kemur auga á bráð snýr hann augunum fram á við til að missa ekki sjónar á henni þegar hann gerir sig líklegan til að hremma hana.

Gegnsæi hjúpurinn á höfði fisksins verndar jafnframt viðkvæm augu hans fyrir stingfrumum annarra sjávardýra þegar hann sækir sér fæðu.

Vísindamennirnir fylgdust með fisknum í um 20 mínútur og náðu í fyrsta sinn á vegum stofnunarinnar myndbandsupptökum af honum í 4K-upplausn. Myndbandið má sjá hér neðst í fréttinni.

Á tæpum 40 árum hafa vísindamenn stofnunarinnar farið í um sjö þúsund köfunarleiðangra með fjarstýrðum neðansjávarförum og safnað rúmlega 41 þúsund klukkustundum af myndefni úr undirdjúpunum.

Þrátt fyrir það hafa þeir aðeins ellefu sinnum rekist á fisk af þessari tegund.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab