Áætla að sýningin kosti 558 milljónir

Í kostnaðaráætlun frá 2019 var gert ráð fyrir að sýningin kostaði alls 425 milljónir króna. Hönnun hennar er lokið og nam hönnunarkostnaðurinn 207 milljónum króna af þeim 288 milljónum sem þegar höfðu verið bókfærðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heildarkostnaður við nýja grunnsýningu Náttúruminjasafns Íslands um hafið er áætlaður 558 milljónir króna. Safnið hafði bókfært 288 milljónir króna vegna sýningarinnar í árslok 2025. Framleiðsla og uppsetning eru taldar kosta 270 milljónir til viðbótar.

Þetta kemur fram í svari Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, við fyrirspurn Ingibjargar Isaksen, þingmanns Framsóknarflokksins, sem birt var á vef Alþingis í gær.

Í kostnaðaráætlun frá 2019 var gert ráð fyrir að sýningin kostaði alls 425 milljónir króna. Hönnun hennar er lokið og nam hönnunarkostnaðurinn 207 milljónum króna af þeim 288 milljónum sem þegar höfðu verið bókfærðar.

Önnur verkefni þurfa að víkja

Í fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031 er ekki gert ráð fyrir sérstakri hækkun framlaga vegna sýningargerðarinnar, framkvæmda við Náttúruhúsið eða uppsafnaðs rekstrarhalla safnsins.

Ráðherra segir því að fresta verði öðrum verkefnum eða falla frá þeim til að standa undir kostnaðinum. Uppsafnaður halli safnsins nam 419,8 milljónum króna í árslok 2025 og er bókfærður kostnaður við sýninguna hluti af þeirri fjárhæð.

Stefnt er að því að opna sýninguna á seinni hluta árs 2027. Faghópur á að skila ráðherra niðurstöðum um miðjan desember um meðal annars stofn- og rekstrarkostnað sýningarinnar og hvort unnt sé að vinna verkið í áföngum. Tímasett verkáætlun verður gerð þegar ákvarðanir um næstu skref liggja fyrir.

Húsið tilbúið til afhendingar

Framkvæmdum við húsið að Safnatröð 5 á Seltjarnarnesi er lokið og það er tilbúið til afhendingar.

Safnið hefur ekki getað tekið við því vegna fjárhagsstöðu sinnar og í fjárlögum ársins voru því ekki tryggðar heimildir til að greiða leiguna, sem nemur um 100 milljónum króna á ári.

Einnig þarf að ljúka frágangi á lóð og bílastæðum áður en húsið verður opnað almenningi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab