Enn misstígur City sig
Manchester City og Fulham gerðu jafntefli, 1:1, í 11. umferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta á Ethiad-leikvanginum í Manchester í dag.
Fyrir leik er City í þriðja sæti með 22 stig en Fulham er í 14. sæti með ellefu. City-menn hafa þá ekki unnið í síðustu fjórum leikjum sínum eftir fullkomna byrjun. Englandsmeistarar Arsenal geta þá komist átta stigum á undan City með sigri á Newcastle í dag.
Rodrigo Muniz kom Fulham yfir á 16. mínútu leiksins. Þá fékk hann boltann frá Oscar Bobb og smellti honum glæsilega í netið, 1:0.
Elliot Anderson jafnaði metin fyrir City á 56. mínútu. Þá datt boltinn fyrir hann rétt utan teigs eftir hornspyrnu og enski landsliðsmaðurinn smellhitti hann og skoraði, 1:1, og þar við sat.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
