Óvænt innkoma Stefáns reyndist heppileg
Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson lét að sér kveða í sigri Hannover á Greuther Fürth, 2:1, í þýsku B-deildinni í fótbolta í Hannover í dag.
Stefán Teitur, sem meiddist í leik Íslands og Búlgaríu í Þjóðadeildinni í nýliðnum glugga, byrjaði á bekknum en kom inn á 8. mínútu vegna meiðsla.
Stefán, sem er fyrirliði liðsins, jafnaði metin fyrir Hannover á 57. mínútu og Waniss Taibi skoraði síðan sigurmarkið í lokin.
Hannover er í áttunda sæti deildarinnar með 15 stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗