Handklæði kom Hollywood-stjörnu í stórkostleg vandræði – Krafinn um 750 milljónir

Fókus

Laugardaginn 21. nóvember 2026 14:00

Stephen er hér til hægri með bróður sínum Alec. Mynd/Getty

Bandaríska leikaranum Stephen Baldwin hefur verið stefnt af tryggingafélagi sem krefur hann um rúmlega sex milljónir dollara, jafnvirði um 750 milljóna íslenskra króna, vegna vatnstjóns á sögufrægu hóteli í Bandaríkjunum.

Málið er nokkuð óvenjulegt en upptök þess má rekja til handklæðis sem á að hafa rekist í úðara brunavarnakerfis.

Hinn sextugi Baldwin dvaldi á Hotel St. Francis í Santa Fe í Nýju-Mexíkó í júlí árið 2024 þegar atvikið átti sér stað.

Samkvæmt málshöfðun tryggingafélagsins Westfield Insurance á Baldwin að hafa farið óvarlega með handklæði inni á baðherbergi hótelherbergis síns. Handklæðið hafi rekist í úðara brunavarnakerfisins með þeim afleiðingum að mikið vatn streymdi út og olli umfangsmiklu tjóni.

Vatnið flæddi um fjölda herbergja, ganga og annarra rýma hótelsins en byggingin sem um ræðir var byggð á 19. öld.

Tryggingafélagið segist hafa greitt rúmlega sex milljónir dollara vegna viðgerða og endurbóta og vill nú að Baldwin endurgreiði þá fjárhæð.

Leikarinn, sem er faðir fyrirsætunnar Hailey Bieber og þar með tengdafaðir poppstjörnunnar Justins Bieber, hafnar því hins vegar að bera ábyrgð á tjóninu.

Lögmaður hans segir málsóknina fráleita og heldur því fram að úðarinn hafi bilað. Baldwin hafi þegar í stað gert starfsfólki hótelsins viðvart, en það hafi ekki tekist að komast inn í tæknirými til að stöðva vatnsrennslið.

Tryggingafélagið hefur neitað að tjá sig um málið á meðan það er til meðferðar fyrir dómstólum. Fréttaveitan Newser greinir frá málinu og vísar meðal annars til umfjöllunar USA Today og People.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab