Lögreglan lýsir eftir Nikulási

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni sem er 72 ára. Nikulás er rúmir 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. 

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að ekkert hafi spurst til hans síðan á þriðjudag 10. nóvember síðastliðinn. Talið er líklegt að hann haldi til í Reykjavík, einhversstaðar í Hvalfirði eða á Akranesi.

Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í grænan þunnan sumarjakka, gallabuxur og strigaskó með bláan bakpoka. Meðfylgjandi mynd er af Nikulási. 

Þeir sem hafa vitneskju um hvar Nikulás gæti hafa haldið sig undanfarna daga eða hvar hann er staddur, vinsamlega hringið í 112 eða sendið tölvupóst á 0776@lrh.is

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab