Barnalæknir grunaður um að hafa ljósmyndað kynfæri sjúklinga sinna
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 14:30
Mynd úr safni. Mynd:Getty
Mál hefur verið höfðað á hendur barnalækninum Bryan Sack fyrir að hafa tekið ljósmyndir af kynfærum barna þegar þau gengust undir skurðaðgerð.
Sack var handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni FBI í febrúar vegna vörslu á barnaníðsefni og fleiri brota. People skýrir frá þessu og segir að Sack hafi þá verið starfandi þvagfæralæknir á barnadeild Nationwide barnaspítalans í Toledo.
Í kjölfar handtökunnar sagði talsmaður sjúkrahússins að kærurnar á hendur Sack tengdust ekki starfi hans á sjúkrahúsinu. En í nýju málshöfðuninni, sem foreldrar 13 barna standa að, kemur fram að þeir efast um þessa skýringu sjúkrahússins.
Foreldrarnir vilja fá skýringar á af hverju Sack geymdi myndir af kynfærum barna, þegar þau gengust undir skurðaðgerðir, við hlið barnaníðsefnis.
Lögreglan fann rúmlega 27.000 myndir af börnum á Dropbox reikningi Sack, þeim til viðbótar voru tæplega 2.000 barnaníðsmyndir.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗