Spurning dagsins á vegum VAL: „Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar“

Í „Spurningu dagsins“ fær forvitni fólks á öllum aldri að ráða ferðinni. Rannsóknarhópurinn að baki VAL vill með stuttum myndböndum gefa almenningi forvitnilegan fróðleik til baka og bjóða fólki að leggja vísindunum lið.

„Er það satt að fólk í gamla daga hafi þvegið á sér hárið með pissi?“ spyr ung stúlka í meðfylgjandi myndbandi.

Svarið kveikir aðra spurningu og þá er leitað til efnafræðings. Þannig leiðir ein spurning stundum af annarri í „Spurningu dagsins“, myndbandaröð á vegum VAL.

Spurning dagsins. 

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og aðalrannsakandi VAL, segir að myndbandaröðin sé hugsuð til að kveikja forvitni og gefa fólki tilefni til að spyrja áfram um bæði flókin og hversdagsleg efni sem það hefur velt fyrir sér.

„Þegar allt kemur til alls þá eru vísindin fyrst og fremst skemmtileg. Maður fær svar og þá langar mann að vita meira. Spurning sem virðist fyrst svolítið skrítin getur opnað alveg nýtt samtal,“ segir Tinna Laufey.

Vísindi eru sameiginlegt verkefni

Spurning dagsins er vísindamiðlun á vegum VAL, rannsóknar Háskóla Íslands á mannlegri hegðun og ákvörðunum í daglegu lífi. Hópurinn sem stendur að rannsókninni hefur fengið fólk á ólíkum aldri til að spyrja vísindafólk um það sem vekur forvitni þess. Bæði viðfangsefnin og spyrjendurnir eru fjölbreytt en fyrst og fremst skemmtileg og mannleg.

Þótt myndböndin fari víða um svið vísindanna þá eru tengingin við VAL skýr, segir Tinna Laufey. Rannsóknin VAL byggist nefnilega á framlagi almennings. Með myndbandaröðinni vilji hópurinn sem stendur að rannsókninni miðla þekkingu sem fólk geti haft gagn og gaman af. Vísindin eru jú fyrst og fremst skemmtileg og innihalda marga fróðleiksmola sem fólk á öllum aldri getur oft tengt við í sínu persónulega lífi, sturlaðar staðreyndir og annað sem vekur áhuga!

„Margar rannsóknir verða ekki gerðar nema fólk gefi af tíma sínum. Þannig er það í VAL. Við biðjum fólk að hjálpa okkur að skilja betur hugsun og hegðun mannsins. Okkur finnst því líka eðlilegt að leggja okkur fram um að gefa fólki eitthvað forvitnilegt til baka.“

Í VAL svarar fólk spurningum og velur á milli kosta. Rannsakendur skoða ákvarðanirnar til að skilja betur hvernig fólk velur í daglegu lífi. Tinna Laufey segir mikilvægt að fólk með ólíka reynslu og aðstæður leggi sitt af mörkum með því að svara spurningum sem tengjast daglegum ákvörðunum þeirra. Hægt er að kynna sér rannsóknina og hefja þátttöku á val.hi.is.

„Þátttakendur leggja til eitthvað sem við sem förum fyrir rannsókninni getum ekki útvegað okkur án þeirra. Okkar hlutverk er að vanda rannsóknirnar, spyrja spurninga sem skipta máli og koma þekkingunni til skila. Þátttakendurnir velja á milli VALkosta og svara þannig spurningum sem blasa við þeim. Niðurstaðan getur síðan hjálpað okkur að bæta samfélagið, en líka einfaldlega gert okkur kleift að skilja betur það sem við sjáum og upplifum.“

Vísindamiðlun geti verið hluti af þessu sambandi löngu áður en niðurstöður einnar rannsóknar liggja fyrir. Í Spurningu dagsins miðlar vísindafólk þekkingu af ólíkum sviðum. Niðurstöður VAL sjálfrar verða kynntar þegar þær liggja fyrir og eitt er víst að ef vel tekst til þá munu þær svara mögum spurningum sem tengjast okkur öllum en einnig knýja fram nýjar spurningar sem fólk  munum hafa áhuga á að svara. Það er því ákveðin vísindamiðlun í þátttökunni líka og verður örugglega forvitnilegt fyrir fólk að skilja á endanum hvaða tilgangi þær spurningar sem þau svöruðu gegndu.

„Við viljum að það sé auðvelt að koma að þessu samtali. Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar. Stundum er það einmitt spurningin sem einhver þorir að segja upphátt sem aðrir hafa líka velt fyrir sér og leitast við að svara.“

Sjá einnig:

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir um rannsóknina VAL: „Það er auðvelt að dæma fólk út frá einni ákvörðun“

Eitthvað til að ræða við eldhúsborðið

Röðin er hugsuð fyrir fólk á öllum aldri, rétt eins og spyrjendurnir eru ólíkir. Tinna Laufey hvetur foreldra og aðra fullorðna til að horfa með börnum á þau myndbönd sem henta þeim og nota þau sem upphaf að samtali.

„Það getur verið gaman að stoppa áður en svarið kemur og velta fyrir sér hvernig þetta gæti verið. Svo má spyrja áfram. Það er alveg nóg að eitt lítið myndband verði að skemmtilegu samtali við eldhúsborðið.“

Hún býður lesendum að fylgja VAL á samfélagsmiðlum, þar sem fleiri spurningar og stutt svör vísindafólks verða á ferðinni. Öllum er velkomið að fylgjast með, hvort sem þeir geta tekið þátt í rannsókninni eða ekki. Tenglar á miðlana eru neðst í þessari umfjöllun. Það er um að gera fyrir fólk að fylgja okkur á þeim miðli sem þeim miðlum sem það notar helst og fá þessa litlu fróðleiksmola inn í daga sína sjálfkrafa á næstunni.

Boð um að leggja vísindunum lið

Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum til VAL eru hvattir til að fara á val.hi.is. Rannsóknin er opin fólki á aldrinum 18–66 ára sem býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu og hefur rafræn skilríki.

Þátttaka getur tekið 15–45 mínútur. Frá fyrstu innskráningu gefast 24 klukkustundir til að ljúka henni og hægt er að gera hlé innan þess tíma. Til að ljúka þátttöku þarf einnig að skrá greiðslukort vegna mögulegra kaupa í rannsókninni. Á vefnum eru nánari upplýsingar um hvað þátttakan felur í sér.

„Ef þú hefur svigrúm til að taka þátt værum við mjög þakklát fyrir þitt framlag. Það er fólkið sem gefur sér þennan tíma sem gerir rannsóknina mögulega,“ segir Tinna Laufey að lokum.

Taktu þátt á val.hi.is

Fylgdu rannsókninni VAL á samfélagsmiðlum og bættu þannig skemmtilegum fróðleiksmolum við daglegt líf þitt.

Facebook  ·  Instagram  ·  TikTok

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab