Könnun Maskínu: Viðreisn tapar fylgi
Viðreisnarfólkið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór
Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu fyrir nóvember og tapar fylgi á milli mánaða.
Í síðasta mánuði mældist flokkurinn með 11,4 prósenta fylgi og tapar því 2,2 prósentustigum. Vísir greindi frá.
Fylgi Miðflokksins eykst úr 13,4% í 15,1%.
Samfylkingin er áfram stærsti flokkurinn með 27,8% fylgi, sem er tæplega einu prósentustigi minna en í síðasta mánuði.
Sjálfstæðisflokkurinn er með 22,3% fylgi, sem er smávægileg bæting á milli mánaða.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗