Katrín opnar sig: „Nær miklu, miklu dýpra“

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja.

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja. AFP

Katrín hertogaynja af Wales opnar sig um baráttu sína við krabbamein í nýrri heimildarmynd BBC þar sem hún segir krabbamein breyta manni.

„Það breytir líkamanum, það breytir manni líkamlega – en það sem krabbameinsgreining breytir í manni nær miklu, miklu dýpra,“ segir Katrín í fyrstu brotunum sem hafa verið sýnd úr heimildarmyndinni og bætir við að það sé ljóst að fólki sé ekki ætlað að bera áskoranir lífsins eitt.

„Oft er það í gegnum sársaukann sem við áttum okkur á því að handan hans býr enn meiri fegurð,“ segir hún og endurspeglar enn á ný þær breytingar sem krabbameinsreynslan hafði í för með sér.

Hefur aldrei sagt hvernig krabbamein

Katrín hefur aldrei greint frá því hvers konar krabbamein hún glímdi við, en í mars 2024 upplýsti hún að hún hefði greinst með krabbamein og væri í lyfjameðferð.

Í janúar 2025 tilkynnti hún að sjúkdómurinn væri í rénun og sneri eftir það smám saman aftur til konunglegra skyldustarfa.

Hún hefur oft talað um breyttan skilning sinn á lífinu eftir veikindin og nauðsyn þess að nálgast vellíðan á heildrænni hátt en aðeins með líkamlegum bata.

Prinsessan hefur talað um góðu og slæmu dagana sem fylgdu meðferðinni – og vildi kveða niður þá hugmynd að sjúklingar gætu strax orðið eins og þeir voru fyrir veikindin.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab