Eiturlyfjabarón handtekinn: Var á topp tíu listanum

Erlent | AFP | 21.11.2026 | 13:58

Mexíkóskur lögreglumaður að störfum.

Mexíkóskur lögreglumaður að störfum. AFP/Charlos Lopez

Bókamerki óvirk fyrir óinnskráða Setja bókamerki

Mexíkóski herinn tilkynnti í dag að hann hefði handsamað leiðtoga hóps eiturlyfjasmyglara sem var á meðal þeirra tíu flóttamanna sem bandarísk löggæsluyfirvöld leituðu ákafast að.

Fausto Isidro Meza, kallaður „Chapo Isidro“, og tveir aðrir leiðtogar glæpagengis hans voru handsamaðir af sérsveitum í áhlaupi í gærkvöldi í Sinaloa-ríki, að því er varnarmálaráðuneyti Mexíkó tilkynnti á X.

  • Blogga um frétt

mbl.is

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab