Eiturlyfjabarón handtekinn: Var á topp tíu listanum
Erlent | AFP | 21.11.2026 | 13:58
Mexíkóski herinn tilkynnti í dag að hann hefði handsamað leiðtoga hóps eiturlyfjasmyglara sem var á meðal þeirra tíu flóttamanna sem bandarísk löggæsluyfirvöld leituðu ákafast að.
Fausto Isidro Meza, kallaður „Chapo Isidro“, og tveir aðrir leiðtogar glæpagengis hans voru handsamaðir af sérsveitum í áhlaupi í gærkvöldi í Sinaloa-ríki, að því er varnarmálaráðuneyti Mexíkó tilkynnti á X.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗