Lögreglan lýsir eftir Nikulási

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni sem er 72 ára. Nikulás er rúmir 170 sentimetrar á hæð og þéttvaxinn.

Ekkert hefur spurst til hans síðan á þriðjudag, 10. nóvember. Talið er líklegt að hann haldi til í Reykjavík, einhvers staðar í Hvalfirði eða á Akranesi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í grænan þunnan sumarjakka, gallabuxur og strigaskó með bláan bakpoka.

Þeir sem hafa vitneskju um hvar Nikulás gæti hafa haldið sig undanfarna daga eða hvar hann er staddur, vinsamlega hringið í 112 eða sendið tölvupóst á [email protected]

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab