Heiðraður sem ein af hetjum Kremlar
Haukur Hauksson var heiðraður af rússneskum stjórnvöldum undir merkjum „Hetjurnar okkar“. Ljósmynd/Rossotrúdnítjestvo
Haukur Hauksson, sem hefur um árabil verið titlaður fréttaritari Útvarps Sögu í Moskvu, er skráður höfundur og kom ítrekað fram sem viðmælandi hjá rússneska áróðursmiðlinum RIA FAN. Samhliða hefur hann farið í ítrekaðar boðsferðir rússneskra stjórnvalda, meðal annars með rússneska hernum á hernumin svæði í Úkraínu. Haukur hefur jafnframt verið heiðraður af rússneskum stjórnvöldum fyrir umfjöllun sína um ólögmætt árásarstríð Rússa í Úkraínu.
Í samtali við Morgunblaðið segir Haukur fyrirspurn blaðsins vegna þessa bera keim af „atvinnurógi“.
Verðlaunaður af Kreml
Árið 2022 fór Haukur, líkt og Stundin greindi frá á sínum tíma, í að minnsta kosti þrjár boðsferðir með rússneska hernum til hernuminna svæða í Austur-Úkraínu. Birti hann meðal annars myndbönd af nasísku veggjakroti, en rússnesk yfirvöld hafa réttlætt innrásina með fullyrðingum þess efnis að Úkraína sé undir áhrifum nasista. Fjöldamorðin miklu í Bútsja kallaði Haukur „algjöra fölsun“ og hann stendur við þau ummæli sín í svari til Morgunblaðsins: „Bútsja var eitt af feikum aldarinnar,“ segir hann. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna skrásetti ólögmæt dráp rússneskra hersveita á tugum almennra borgara í bænum.
Í nóvember 2023 sat Haukur sem „erlendur blaðamaður“ blaðamannafund leppstjóra Rússa í hernumdu Donetsk-héraði í Úkraínu. Mánuði síðar var hann heiðraður í Moskvu við afhendingu fjölmiðlaverðlauna sem kallast „Heiðarlegt sjónarhorn“. Er það rússneska ríkisstofnunin Rossotrúdnítjestvo sem veitir þau. Haukur var í hópi þeirra fimm erlendu blaðamanna sem voru heiðraðir sem „Hetjurnar okkar“, en verðlaunin voru veitt fyrir „óhlutdræga umfjöllun um sérstöku hernaðaraðgerðina“. Vert er að geta þess að umfjöllun sem stangast á við skýringar rússneskra stjórnvalda á stríðinu getur varðað allt að fimmtán ára fangelsi í Rússlandi.
Haukur staðfestir að hafa fengið viðurkenningarskjal, sem hann hafi hent „jafnóðum“ í ruslið. Á þessu ári var Haukur á meðal þeirra fimm fjölmiðlamanna sem tilnefndir voru til verðlaunanna „Vinskapsbrúin“, en það er Forsetasjóður menningarverkefna sem styður þau.
Elskar Rússland af öllu hjarta
Haukur hefur verið kynntur í Rússlandi sem formaður samtaka erlendra fréttaritara þar í landi. Á blaðamannafundi Vladímírs Pútíns í desember 2020 sagði hann við forsetann: „Við elskum Rússland af öllu hjarta. Það eru fjölmiðlarnir og yfirvöldin, svo sem BBC, CNN og fleiri – þar á meðal íslenskir fjölmiðlar, sem saka þig um mjög slæma hluti. Það er háð stórt stríð gegn þér persónulega.“
Jevgení Prígosjin stofnandi Wagner-hópsins rak áróðursmiðil og birtust þar skrif merkt Hauki sem jafnframt var þar oft sem viðmælandi. AFP/Telegram
Sama dag greindu Otkrytye Media og þýski miðillinn t-online frá því að efni eftir Hauk hefði birst hjá RIA FAN, miðli sem var hluti af fjölmiðlaveldi Jevgenís Prígosjins, stofnanda Wagner-málaliðahersins. Haukur kom einnig fram í að minnsta kosti fjórum viðtölum við miðilinn.
Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur sagt fjölmiðlaveldið dreifa reglulega upplýsingaóreiðu og áróðri, en það var lagt niður eftir misheppnaða uppreisn Prígosjins árið 2023. Í gögnum ráðuneytisins frá 2022 er því haldið fram, með vísan til óháðra rannsakenda, að Haukur hafi starfað fyrir RIA FAN, en engin frekari útlistun er á þeirri fullyrðingu.
Í fyrrnefndri grein frá september 2020, þar sem Haukur er skráður höfundur, er því haldið fram að Bandaríkin þrói sýklavopn nærri landamærum Rússlands. Engar haldbærar sannanir eru fyrir slíku. Í svari sínu við spurningum Morgunblaðsins neitar Haukur því að hafa starfað fyrir RIA FAN og að hafa skrifað greinina, en segist þó þekkja efni hennar og að allt sé satt og rétt sem þar kemur fram.
Þegar Haukur var spurður hvort honum þætti eðlilegt að blaðamaður tæki á móti ríkisstyrktum verðlaunum frá Moskvuvaldinu svaraði hann því ekki. Benti þess í stað á að hann hefði starfað í 20 ár fyrir Ríkisútvarpið og 17 ár fyrir Útvarp Sögu. Þá spurði Haukur hvort utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefði sent Morgunblaðinu erindi vegna hans. Sagðist Haukur hafa séð bílalest Marcos Rubios utanríkisráðherra á Reykjanesbraut: „[Ég] hef greinilega verið spottaður af CIA.“ Vart þarf að taka fram að ekkert erindi barst blaðinu.
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, segir stöð sína ekki taka undir allar skoðanir Hauks. Þá vildi hún ekki svara því hvort Haukur hefði þegið laun frá Útvarpi Sögu.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
