Einmanaleiki getur stytt lífið um tæplega sex ár

Pressan

Laugardaginn 21. nóvember 2026 13:30

Einmana kona í mannfjölda/Wikimedia-Mike Wilson/Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Þú þekkir örugglega tilfinninguna um að finnast þú vera aleinn þrátt fyrir að það sé fólk í kringum þig. Sumir upplifa þessa tilfinningu sjaldan en aðrir nánast daglega. Þessi tilfinning hefur áhrif á meira en bara skapið.

Í nýrri rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Nature Communication, var í fyrsta sinn reynt að kortleggja hversu mörg æviár, við góða heilsu, einmanaleiki og félagsleg einangrun kosta.

Niðurstaða rannsóknarinnar er að karlar, sem eru einmana og félagslega einangraðir, lifa að meðaltali 5,8 árum skemur lausir við þunglyndi og kvíða en jafnaldrar þeirra. Hjá konum er talan 3,7 ár.

Það voru vísindamenn við Tulane University í New Orleans sem gerðu rannsóknina. Þeir studdust við gögn um rúmlega 277.000 fullorðna á aldrinum 40 til 69 ára. Gögnin komu frá UK Biobank heilsufarsgagnagrunninum.

Allir þátttakendurnir voru heilbrigðir við upphaf rannsóknarinnar, það er að segja lausir við hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki 2, lungnasjúkdóm, elliglöp, krabbamein og andleg veikindi á borð við þunglyndi og kvíða.

„Þetta snýst um kynjamuninn,“ sagði Lu Qu, aðalhöfundur rannsóknarinnar. Hann og samstarfsfólk hans benda á að karlar séu viðkvæmari fyrir andlegum afleiðingum einmanaleika og að konur lifi að jafnaði lengur og standi betur að vígi hvað varðar suma sjúkdóma.

Í ofanálag við andlegu erfiðleikana, þá missa einstaklingar, sem eru einmana og félagslega einangraðir, einnig æviár sem þeir eru lausir við líkamlega sjúkdóma. Konurnar missa 2,4 ár að meðaltali en karlarnir 1,7 ár.

Vísindamennirnir rannsökuðu einnig hvort heilbrigður lífsstíll (það er að segja betra mataræði), reglulega hreyfing, nægur svefn og að reykja ekki dragi úr áhrifunum á ævilengdina.

Svarið er bara að hluta uppörvandi. Heilbrigður lífsstíll gat á mælanlegan hátt dregið úr áhrifum einmanaleika og félagslegrar einangrunar á heilsufarið.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab