Sigmundur Ernir skrifar: Fénýting forsetaembættis

Á tveggja vikna ferð minni um Bandaríkin, fyrr í mánuðinum, þar sem mér gafst tækifæri til að kynna mér stjórnmálahorfur í landinu að afloknum kosningum, sem breyttu vel að merkja valdahlutföllunum í báðum deildunum á Þinghússhæðinni í Washington, kom það mér á óvart að fulltrúar demókrata og repúblikana eru í öllum meginatriðum sammála um hættuna sem stafað hefur af Donald Trump – og mun gera, enn um sinn, og jafnvel í auknum mæli það sem eftir lifir af forsetatíð hans.

Það var auðvitað viðbúið að heyra það úr munni demókrata að maðurinn væri jafn hættulegur og hann þætti óhæfur á forsetastóli – og bláu bylgjuna í nýafstöðnum kosningum vestra mætti fyrst og síðast þakka honum einum, og raunar miklu heldur en andstæðingum hans, en að heyra álíka efasemdir úr hálsi repúblikana, í bland við einlægt svekkelsi þeirra, vakti ekki síður, og jafnvel enn meiri undrun manns. Því ekki var tæpitungunni fyrir að fara. Og það var látið vaða á súðum.

Trumpisminn hefði tapast á algerum ófyrirsjáanleika mannsins, ekki síst út af efnahagslegum dyntum hans og hentistefnu, svo og einleik karlsins og truflaðri valdbeitingu, höfðu samflokksmenn hans á orði, á meðan stjórnarandstæðingar þreyttust ekki á að segja að sögulegt afhroðið mætti ekki síst rekja til þess hversu ófyrirleitinn forsetinn hefði verið við að skara eld að eigin köku. Tækifærissinninn sá arna nýtti hvern þann möguleika sem hann hefði til að fénýta forsetaembættið í þágu fjölskyldu sinnar, og skammaðist sín ekki einu sinni fyrir það, ólíkt almenningi sem væri kominn með upp í kok af þvíumlíku svínaríi fyrir opnum tjöldum, sem sæi því miður ekki fyrir endann á.

Bandarískar kosningar ráðast öðru fremur á heimilisbókhaldinu. Og það var Trump ekki í vil í þetta skiptið, þvert á það sem hann hafði boðaði með þeim orðum að Ameríka ætti að koma fyrst, og svo allt hitt. En reyndin var á að giska öfug, því leiðarstefið var lúaleg aðför að næstu nágrönnum og helstu bandamönnum Washington-valdsins frá lokum seinna heimsstríðsins.

Afleiðingarnar þekkja allir. Ófrjáls viðskipti þjóða á milli eru grjót í vélavirki kapítalismans. Einangrun ríkja merkir það eitt að þau verða út undan. Frelsi hefur djúpstæða merkingu.

„Það er því kannski dæmigert að múrinn á mexíkósku landamærunum, sem Trump auðnaðist aldrei að reisa, er nú varðaður bláum ríkjum frá ströndum Kyrrahafs til Mexíkó-flóa, en repúblikanar voru þar stráfelldir eins og í gamaldags kúrekamynd.“   

Ég ræddi við þaulreyndan öldungadeildarþingmann frá Maine, nyrsta ríki landsins, sem hafði aldrei upplifað aðra eins ágjöf og frá því Trumpisminn hélt innreið sína í Ameríku. Helmingur húsa í héraði hans væri enn þá kynntur með olíu, sem hefði hækkað um helming í verði, og allur flutningskostnaður af sömu ástæðu, en öllu verra væri að karlinn í Hvíta húsinu hefði reitt bestu nágranna Maine til svo mikillar reiði, með ofstækisfullum refsitollum, að ferðamönnum þaðan hefði fækkað um nærri áttatíu af hundraði á því ári sem nú er að líða – og vel að merkja; Maine hefur verið einn allra vinsælasti sumardvalarstaður Kanadamanna um áratugaraðir.

Í viðtölum mínum við þingmenn sunnar úr Bandaríkjunum mátti ráða að ofsóknir Trumps og hans pótintáta gagnvart vinnuafli frá latínskum löndum Ameríku hefðu þrengt svo að atvinnulífi á þeim slóðum, og ekki síst landbúnaði, að erfitt væri að sjá hann rísa á ný til fyrri hæða. Viðvarandi skortur á verkafólki væri slíkur að afturkippnum mætti helst líkja við kokkálaða krísu af mannavöldum. Og engin atvinnugrein í hinum mögnuðu miðríkjum væri einmitt mannaflsfrekari en matvælaframleiðslan.

Það er því kannski dæmigert að múrinn á mexíkósku landamærunum, sem Trump auðnaðist aldrei að reisa, er nú varðaður bláum ríkjum frá ströndum Kyrrahafs til Mexíkó-flóa, en repúblikanar voru þar stráfelldir eins og í gamaldags kúrekamynd. Múrinn varð að lokum demókratískur sigur.

Líklega varðar þó mestu fyrir pyngju fólks að matvara hefur hækkað úr hófi fram. Það færir hvað hraðast til krossinn í kjörseðlinum. Það stafar einkum af því að fjölmargir kostnaðarliðir í landbúnaði hafa stigið svo svíður undan. Og bændur nefna þar til sögunnar snaraukinn kostnað við laun, áburð, fóður, tryggingar, heilbrigðiskostnað og ýmsar rekstrarvörur. Að ógleymdu eldsneytinu.

Eggjaframleiðendur, svo einfalt dæmi sé tekið, segja að verð á eggjum frá búum sínum hafa tvöfaldast á sex árum og kosti nú níu dali tylftin. Að þeirra sögn hafi verðhækkunin verið nauðsynleg til að mæta auknum kostnaði vegna vinnuafls og fóðurkostnaðar sem hafi hækkað um nærri fimm dali frá árinu 2025. Og þá sé þeim öllum lokið.

Svona tapast sumsé kosningar. Einmitt heima fyrir. Á meðan Trump var aðallega erlendis.

Og þá er bara spurningin hvort maðurinn kunni að skammast sín. Og taka ósigrinum. En tæpast verður það svo. Bernie Sanders hefur munnhöggvist við Donald Trump nógu lengi til að vita að ófyrirsjáanleikinn getur hæglega orðið að enn meiri ófyrirleitni. Sá gamli öldungadeildarþingmaður hefur sagt svo eftirminnilega að Trump þessi megi ekki einasta heita versti forseti í 250 ára sögu Bandaríkjanna heldur sá hættulegasti af þeim öllum til samans.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab