Blái augnskugginn snýr aftur af fullum krafti
Unnur Birna J. Backman leikur Elmu í samnefndum þáttum sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans Premium. Ljósmynd/Rebekka Rut
„Mig langaði að endurspegla stemninguna sem einkennir Dressed in Wonder-hátíðarlínuna frá Guerlain þegar ég farðaði Unni Birnu J. Backman,“ segir Sara Björk Þorsteinsdóttir förðunarfræðingur, sem fékk það verkefni að farða leikkonuna fyrir Jólablað Morgunblaðsins. Unnur Birna heldur fast í jólahefðir úr æsku, skipuleggur gjafakaup allt árið og segir rjúpuna ómissandi á jólaborðinu.
Augnskuggapallettan og varalitirnir koma í sérlega vönduðum umbúðum sem keyra upp hátíðleikann í hversdeginum. Sara lagði áherslu á húðin væri vel nærð áður en hún byrjaði að farða Unni Birnu. Sara vildi kalla fram samspil milli kaldra og hlýrra tóna í andlitinu og lagði áherslu á að augnförðunin væri þannig að hún gripi augað.
„Unnur Birna hefur einstaklega fallega útgeislun og því vildi ég leyfa náttúrulegum eiginleikum hennar að njóta sín á meðan litirnir og áferðin úr hátíðarlínunni settu punktinn yfir heildarútlitið,“ segir Sara.
Förðunin skref fyrir skref:
„Til að undirbúa húðina og skapa fallegan ljóma frá grunni notaði ég fyrst Abeille Royale Youth Watery Oil Serum, því næst Abeille Royale Midnight Secret sem er skjótvirk meðferð til að koma augnsvæðinu í sitt besta form og þar á eftir Abeille Royale Honey Treatment Day-krem sem fyllti húðina af raka,“ segir Sara sem valdi ljómafarðann Terracotta Le Teint Glow sem gefur náttúrulega ljómandi áferð og fullkomna þekju.
„Þar sem þurfti aðeins meiri þekju og birtu bætti ég við hyljaranum Terracotta-hyljara undir augu, milli augabrúna, á höku og örlítið fyrir ofan og neðan augabrúnir til að opna augnsvæðið,“ segir hún.
Sara mótaði andlitið með Terracotta Bronzer púðri númer 03.
„Ég bar á hæstu beinin á andlitinu, kinnbeinin, augnbein, nefbein, enni og meðfram kjálkalínu. Á kinnarnar valdi ég ískaldan ljósbleikan Terracotta Blush og efst á kinnbeinin setti ég Terracotta Luminizer til að fá meiri glans í andlitið. Til að fullkomna ljómann dustaði ég Météorites Pearls úr hátíðarlínunni yfir hæstu punkta andlitsins.“
Augu Unnar Birnu eru sérstaklega fallega förðuð. Sara notaði hátíðarlitina úr Ombres G Mystery-augnskuggapallettunni en þar eru bláir tónar í aðalhlutverki.
„Eftir nokkur ár þar sem hlutlausir jarðlitir hafa verið allsráðandi er blái augnskugginn snúinn aftur af fullum krafti og hefur verið einn af mest áberandi litunum á tískupöllum ársins 2026. Nútímaleg útgáfa litarins er þó mýkri og fágaðri en við höfum séð áður, með silfruðum og perlukenndum tónum sem gefa augunum birtu og dýpt. Það kom mér því ekki á óvart að sjá bláa litinn í hátíðarlínu Guerlain í ár. Litirnir nutu sín einstaklega vel á Unni Birnu, þar sem bláir tónar draga fallega fram brúnu augun hennar og ljá útlitinu líflegan, hátíðlegan og örlítið óvæntan blæ,“ segir Sara sem setti þunna línu með Noir G Graphic Liner efst við augnhárarótina til að ramma augun inn á heillandi hátt. Hún setti líka örlítið fyrir neðan augnkrók til að bæði stækka augun og gera hana svipmeiri.
Abeille Royale Midnight Secret, Terracotta Le Teint Glow farðinn og hyljarinn kalla fram fallega áferð. Terracotta Le Teint Noir G Graphic Line, maskarinn Noir G, KissKiss Bee Glow Oil og Abeille Royale Youth Watery Oil Serum. Samsett mynd
„Augnhárin fengu fyllingu með Noir G-maskara og augabrúnirnar mótaðar og fylltar með Brow G-augabrúnablýanti. Á varirnar notaði ég ljósbleikan Contour G-varalitablýant til að ramma varirnar inn á sjarmerandi hátt. Þar yfir fór Rouge G, Satin í litnum 08, sem gefur mjúkan, fágaðan, ljósbrúnan lit og að lokum hátíðarvaraolían KissKiss Bee Glow Oil til að fá spegilsléttan glans,“ segir hún.
Eins og sjá má er útkoman nútímaleg og fersk, ekki síst vegna hinna ísköldu bláu tóna sem prýða augnförðunina. Bláa förðunin fer vel við glansandi varir og fallega áferð á húðinni.
Unnur Birna tengir vörunar frá Guerlain alltaf við móður sína heitna, Eddu Heiðrúnu Backman, sem var hrifin af Abeille Royale-kreminu, Terracotta-sólarpúðrinu, „iconic“ Météorites-perlunum og Rouge G-varalitunum í fallegu hulstrunum.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



