Óvæntur glaðningur beið íbúanna í póstkössunum – Enginn veit hver var að verki
Íbúar fjölbýlishúss í hollensku borginni Schiedam hafa á undanförnum dögum fengið heldur óvænta glaðninga í póstkassa sína.
Að minnsta kosti tíu íbúar hafa fundið þar 50 evru seðla án þess að nokkur skýring fylgdi.
Enginn virðist vita hver stendur að baki peningagjöfunum eða hvað viðkomandi gengur til. Jafnvel lögreglan er engu nær um hver þessi dularfulli velgjörðarmaður er. Eitt liggur þó fyrir og það er að peningaseðlarnir eru ósviknir.
Þýski fjölmiðillinn Bild fjallar um málið og vísar meðal annars í umfjöllun hollenska svæðisfjölmiðilsins Omroep Twee, sem fyrstur greindi frá málinu.
„Sonur minn tæmdi póstkassann og þar lá þessi peningaseðill – ekkert annað,“ sagði einn íbúanna í samtali við fjölmiðilinn.
Fyrst datt henni í hug að einhver væri að greiða henni gamla skuld en áttaði sig fljótt á því að hún ætti ekki peninga inni hjá neinum.
„Ég hef í raun ekki hugmynd um það – kannski voru það einhverjir litlir álfar?“ sagði hún spurð hver gæti hafa verið að verki.
Fleiri íbúar hafa síðan greint frá því að þeir hafi fengið sams konar glaðning og ekki er útilokað að viðtakendur peningagjafanna séu fleiri en þegar er vitað um.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dularfullur velgjörðarmaður lætur til sín taka á þessum slóðum.
Í janúar árið 2024 fékk kona í Delfshaven-hverfinu í Rotterdam, skammt frá Schiedam, nokkur umslög með peningum frá óþekktum sendanda.
Í fyrsta umslaginu voru 250 evrur ásamt miða með eftirfarandi skilaboðum:
„Sem þakklætisvott fyrir það góða sem þú hefur gert fyrir mig. Gerðu vel við þig eða gefðu peningana til góðgerðarmála.“
Í næsta umslagi voru 600 evrur og í því þriðja voru hvorki meira né minna en 1.000 evrur. Alls fékk konan því 1.850 evrur.
Hvorki konunni né lögreglunni tókst að komast að því hver sendi henni peningana. Ekkert liggur fyrir um hvort málin tvö tengist með einhverjum hætti.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗