Miðflokkurinn á flugi – Ný könnun vekur athygli
Miðflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og mælist nú með 15,1 prósent. Flokkurinn mældist með 13,4 prósent í október og hefur því bætt við sig 1,7 prósentustigum milli mánaða.
Frá þessu er greint á Vísi.
Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með 27,8 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur með 22,3 prósent. Báðir flokkar standa nokkurn veginn í stað milli mánaða.
Viðreisn tapar hins vegar töluverðu fylgi og mælist nú með 9,2 prósent fylgi, samanborið við 11,4 prósent í október. Flokkurinn hlaut tæplega 16 prósent atkvæða í síðustu þingkosningum.
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir í samtali við Vísi að fréttamál tengd Viðreisn virðist hafa haft áhrif á fylgi flokksins.
Vinstri græn mælast jafnframt með fimm prósenta fylgi og næðu því manni inn á þing miðað við niðurstöðurnar.
Eiríkur bendir á að samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hafi dregist töluvert saman og sé nú í kringum 40 prósent.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗