Skólastjóri Hagaskóla: „Mikilvægt að við fáum frið“

Hagaskóli.

Hagaskóli. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Skólastjóri Hagaskóla segir mikilvægt að starfsfólk skólans fái frið til að sinna skólastarfinu. Mál tveggja starfsmanna skólans, sem hefur verið í fréttum undanfarna daga, er í skoðun.

„Ég held að við séum að gera allt sem við getum til að skapa ró og frið og við erum að vinna í málinu,“ segir Sigríður Nanna Heimisdóttir skólastjóri aðspurð.

Hún kveðst engu geta bætt við þá umfjöllun sem þegar hefur komið fram.

„Mér þykir mikilvægt að við fáum frið til að sinna skólastarfinu,“ segir hún og bætir við:

„Umfjöllunin hefur áhrif á nemendur og skólasamfélagið í heild sinni og við viljum fá að einblína á hið faglega starf sem er í gangi.“

Spurð hvort annar starfsmannanna sé kominn í leyfi kveðst Sigríður Nanna ekki mega tjá sig um mál einstakra starfsmanna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab