SR-ingar svöruðu fyrir sig
SR hafði betur gegn Fjölni, 4:2, í Reykjavíkurslag í Toppdeild karla í Egilshöllinni í gærkvöldi.
SA-ingar eru efstir í Toppdeild karla með 19 stig. SR-ingar koma næstir með 17 stig og eiga leik til góða. Fjölnir er í þriðja sæti með 12 stig og U20-landsliðið situr á botninum án stiga.
Leikurinn var nokkuð jafn en gestirnir úr Laugardalnum voru þó sterkari og settu fyrsta markið eftir tvær og hálfa mínútu er Slóvakinn Eduard Kasack kom pökknum fram hjá Þóri markverði Fjölnis.
Það sama var uppi á teningnum í öðrum leikhluta þegar Egill Þormóðsson skoraði annað mark SR. Fjölnir minnkaði muninn skömmu seinna, manni fleiri eftir refsingu gestanna, með marki Kristjáns Jóhannessonar.
SR svaraði rúmri mínútu síðar og jók aftur muninn með marki Níelsar Hafsteinssonar. Það var svo fyrirliði SR, Kári Arnarsson, sem kórónaði góðan þriggja marka leikhluta með fjórða marki SR-inga.
SR og Fjölnir mætast aftur í Skautahöllinni í Laugardal núna á þriðjudag kl. 19.45.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗