Genis sækir fjármagn í gegnum Nordic Match
Tanya Min Wen framkvæmdastjóri fjármálaráðgjafar og Tony Wang, meðeigandi hjá Nordic Match, á fundi með íslenskri sendinefnd. mbl.is/Baldur
Íslenska líftæknifyrirtækið Genis og sænsk-kínverska fyrirtækið Nordic Match hafa undirritað samning um að síðarnefnda fyrirtækið leiti að fjármagni til frekari uppbyggingar Genis.
Róbert Guðfinnsson stofnandi Genis staðfestir þetta en samningarnir voru undirritaðir á fimmtudaginn var. Nordic Match er með skrifstofur í Sjanghaí og Stokkhólmi en fyrirtækið sérhæfir sig í fjármálaráðgjöf til fyrirtækja. Nordic Match vinnur að fjármögnuninni í samstarfi við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.
Róbert segir samninginn fela í sér að Nordic Match ætli að sækja fjármögnun fyrir Genis upp á 20 milljónir dala, eða sem svarar tveimur og hálfum milljarði króna. Gangi þetta eftir muni Genis ná að klára beinaverkefni til að koma þeim í gegnum lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, og koma út með markaðshæfa vöru.
Hafði spurnir af samstarfi
Samstarf Genis og Nordic Match má rekja til þess að Róbert hafði síðastliðið vor spurnir af samstarfi Nordic Match og Sjóklæðagerðarinnar. Viðræðurnar hafa staðið yfir í nokkurn tíma en í byrjun mánaðar fylgdist Morgunblaðið með fundi fulltrúa fyrirtækjanna og Íslandsstofu í Sjanghaí en Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands í Kína, var heiðursgestur.
Samkomulagið kemur í kjölfar annars samkomulags sem Genis gerði við kínverska stórfyrirtækið Biotemed á dögunum en það var undirritað í höfuðstöðvum síðarnefnda fyrirtækisins í hafnarborginni Qingdao, að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og íslenskri viðskiptasendinefnd viðstöddum.
Rætt var við Nie Renke stjórnarformann Biotemed í Morgunblaðinu síðasta laugardag en þar lýsti hann þríþættum ávinningi fyrirhugaðs samstarfs við Genis.
Nýtt til beinviðgerða
Í fyrsta lagi með því að nýta yfirburði Biotemed í nýtingu breytts kítósans til að veita heildstæða þjónustu fyrir beinviðgerðarefni Genis og stuðla þannig að alþjóðlegri útbreiðslu kínverskrar rannsókna-, þróunar- og framleiðslutækni á sviði lífefna úr hafinu. Í öðru lagi með því að kynna Benecta-fæðubótarefni Genis á kínverskum neytendamarkaði fyrir heilsu og vellíðan. Til þess muni Biotemed einkum nýta sér vefsölu hjá Tmall Global, JD Worldwide, Douyin Global og Kuaishou Global til að auka framboð fyrirtækisins á heilsuvörum úr hafinu. Í þriðja lagi verði Ísland stökkpallur fyrir Biotemed inn á Evrópumarkað enda muni Genis prófa og meta lækningatæki Biotemed og koma á markað í Evrópu en reisa á líftækniverksmiðju á Íslandi í þessu skyni.
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands í Kína, og Svandís Þóra Kristinsdóttir vararæðismaður á fundi með Nordic Match í Sjanghaí fyrr í þesum mánuði. mbl.is/Baldur
Áðurnefnd fjármögnun Genis hjá Nordic Match gerir Genis kleift að ráðast í þessa uppbyggingu á Íslandi, ásamt því sem vefsala á fæðubótarefninu Benecta í Kína, í samstarfi við Biotemed og fyrrnefndar vefsíður, mun skila Genis auknum tekjum á komandi árum.
Íslenskt astaxanthín til Kína
Íslensk líftæknifyrirtæki eru því að sækja fram í Kína en sagt var frá því í Morgunblaðinu á mánudaginn var að fyrirtækið Ísmoli hefði undirritað samning við kínversku netverslunina Chancemate um sölu á vörum Ísmola í Kína. Vörumerkið heitir ísmoli og inniheldur fæðubótarefnið astaxanthín sem er framleitt af Algalífi á Ásbrú.
Pearl Shang, stjórnandi Ísmola í Kína, og Wu Shu meðstofnandi Chancemate handsöluðu samninginn á alþjóðlegri sýningu innflytjenda (CIIE) í Sjanghaí 30. október að viðstöddum Bergdísi sendiherra og fulltrúum Íslandsstofu og íslenskrar viðskiptasendinefndar.
Fram kemur í frétt Morgunblaðsins um málið í dag að samningar Genis við Nordic Match hafi tryggt Genis fjármagn. Það var oftúlkun og leiðréttist það hér með.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
