Tæp 43 kíló af kókaíni fundust undir fölsku gólfi

Efnin fundust í 43 pakkningum í leynihólfi undir gólfi sendibíls mannsins við tollskoðun á Seyðisfirði 27. mars. mbl.is/Sigurður Bogi

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann, Alexandros Katsanos, í níu ára fangelsi fyrir að flytja tæp 43 kíló af kókaíni til landsins með Norrænu. Hann var enn fremur dæmdur til að greiða tæpar 11,4 milljónir króna í sakarkostnað.

Efnin fundust í 43 pakkningum í leynihólfi undir gólfi sendibíls mannsins við tollskoðun á Seyðisfirði 27. mars.

Maðurinn neitaði sök og sagðist ekki hafa vitað af efnunum. Dómurinn féll 17. nóvember. 

Dómurinn taldi hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hefði af ásetningi staðið að innflutningnum. Við sönnunarmatið leit dómurinn meðal annars til þess hvernig maðurinn reyndi að villa um fyrir tollvörðum og hvernig frásögn hans breyttist eftir því sem rannsókninni miðaði.

Sagðist vera á vegum Caterpillar

Bíllinn var merktur sem þjónustubíll Caterpillar og maðurinn var í fatnaði merktum fyrirtækinu. Hann sagði tollvörðum að hann væri kominn á vegum Caterpillar í Þýskalandi til að skoða vélar og tæki hjá Kletti. Tollverðir höfðu samband við starfsmenn Kletts sem könnuðust hvorki við manninn né fyrirhugaða heimsókn.

Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa sagt tollvörðum ósatt um ástæðu ferðarinnar en bar einnig við tungumálaerfiðleikum og misskilningi. Af upptöku af samtalinu réð dómurinn að maðurinn og tollverðirnir hefðu skilið hver annan vel. Dómurinn taldi manninn hafa reynt að blekkja tollverðina og framvísað skjölum til að styðja frásögn sína. Í skjölunum var bíllinn sagður í eigu Caterpillar þótt maðurinn ætti hann sjálfur.

Endurstillti símann fyrir tollskoðun

Maðurinn eyddi gögnum úr síma sínum með því að endurstilla hann meðan hann beið tollskoðunar. Í kjölfarið voru skráð símtöl í 57 tilvikum við fimm erlend númer, ýmist í gegnum símakerfið eða forrit. Maðurinn taldi símtölin færri og gaf að mati dómsins takmarkaðar skýringar á samskiptunum.

Hann sagðist í fyrstu hafa hitt samlanda sinn fyrir tilviljun um borð í Norrænu. Síðar viðurkenndi hann að þeir hefðu verið samferða frá Þýskalandi um Danmörku. Hann sagðist einnig hafa komið til Íslands í atvinnuleit. Dómurinn taldi þá skýringu ótrúverðuga og benti meðal annars á að maðurinn hefði lítið undirbúið ferðina, verið með nær engan persónulegan farangur og ekki gert ráðstafanir um gistingu.

Óvíst hvenær milligólfið var sett í bílinn

Matsmenn töldu milligólfið sérsmíðað fyrir bílinn. Dómurinn taldi breytingarnar bera þess merki að hafa verið gerðar skömmu fyrir Íslandsferðina en taldi ósannað að gólfið hefði verið sett í eftir að maðurinn keypti bílinn. Matsgerðirnar studdu heldur ekki að maðurinn hefði átt að verða var við fíkniefnin við akstur.

Að virtum gögnum málsins í heild taldi dómurinn sannað að maðurinn hefði vitað af kókaíninu og nýtt sér sérútbúinn bílinn til að flytja það til landsins. Kókaínið var samtals 42,9 kíló, 83–85% að styrkleika, og ætlað til sölu og dreifingar í ágóðaskyni.

Níu ára fangelsi og 11,4 milljónir í sakarkostnað

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til magns og styrkleika kókaínsins, skipulagningar brotsins og þeirrar hættu sem hefði skapast ef efnin hefðu komist í dreifingu. Þá leit dómurinn til þess að maðurinn hefði reynt að villa um fyrir lögreglu við rannsókn málsins.

Það var manninum til málsbóta að hann hafði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi. Við ákvörðun refsingar naut hann einnig vafans um hvort hlutverk hans hefði náð lengra en að flytja efnin til landsins og koma þeim í hendur annarra.

Gæsluvarðhaldið sem maðurinn sætti frá 28. mars til dómsuppsögu dregst frá fangelsisrefsingunni. Dómurinn gerði kókaínið, sendibílinn og farsímann upptæk og manninum var gert að greiða tæpar 11,4 milljónir króna í sakarkostnað.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab