Vissu í september að stöðin gæti ekki opnað í desember

Ráðuneytið miðar við að stöðin verði tilbúin á síðasta ársfjórðungi 2027, að því gefnu að nauðsynlegar skipulagsbreytingar nái fram að ganga. Fáist ekki vilyrði fyrir þeim gæti Rockville-lóðin komið aftur til skoðunar. Ráðuneytið telur að sú leið tæki lengri tíma og kostaði meira. Á myndinni má sjá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dómsmálaráðuneytinu var orðið ljóst í september að brottfararstöð gæti ekki tekið til starfa 1. desember eins og til stóð.

Þegar viðræður hófust við eigendur húsnæðis á Ásbrú kom í ljós að ráðuneytið taldi óforsvaranlegt að hefja starfsemi í hluta hússins meðan framkvæmdir stæðu yfir.

Þetta kemur fram í minnisblöðum ráðuneytisins sem birtust á vef Alþingis í gær, sem má lesa hér og hér.

Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði sama dag fram frumvarp um að fresta upphafi starfsemi stöðvarinnar til 1. desember 2027. Áformin um ársfrest höfðu verið kynnt 11. nóvember. 

Stefndu enn að opnun um miðjan september

Í júní gerði Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir ráð fyrir að varanlegt húsnæði yrði í fyrsta lagi tilbúið sumarið 2027. Samhliða var leitað að bráðabirgðahúsnæði á Suðurnesjum svo stöðin gæti tekið til starfa í desember. Fjórtán tilboð bárust frá þrettán aðilum. Ekkert þeirra fól í sér húsnæði sem uppfyllti lögbundnar kröfur til starfseminnar án breytinga.

Húsið við Klettatröð 8 á Ásbrú var talið hagkvæmasti og raunhæfasti kosturinn. Fjármála- og efnahagsráðuneytið heimilaði samningaviðræður 2. september. Vísir greindi frá því 16. september, daginn fyrir fyrsta samningafundinn, að enn væri unnið að því að stöðin gæti opnað 1. desember.

Eigendur hússins töldu að hægt væri að taka hluta þess í notkun og hefja starfsemi í áföngum. Í viðræðunum í september var sú leið metin óforsvaranleg vegna öryggis og aðbúnaðar vistmanna og starfsfólks. Þar með lá að sögn ráðuneytisins fyrir að stöðin gæti ekki tekið til starfa fyrir árslok.

Áætlunin fyrir 2027 háð skipulagsbreytingum

Þegar Klettatröð 8 varð fyrir valinu lá formleg afstaða skipulagsyfirvalda ekki fyrir. Í byrjun október varð að sögn ráðuneytisins ljóst að fulltrúar í sveitarstjórn Reykjanesbæjar kynnu að hafna nauðsynlegum skipulagsbreytingum og veitingu byggingarleyfis.

Ráðuneytið miðar við að stöðin verði tilbúin á síðasta ársfjórðungi 2027, að því gefnu að nauðsynlegar skipulagsbreytingar nái fram að ganga. Fáist ekki vilyrði fyrir þeim gæti Rockville-lóðin í Suðurnesjabæ komið aftur til skoðunar. Þar þyrfti að reisa hús frá grunni og telur ráðuneytið að sú leið tæki lengri tíma og kostaði meira.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab