Útskrifaðist af Grensás í heimferðargalla
Hjónin Helga Guðnadóttir og Gunnar Örnúlfur Reynisson. Þau hafa lagt áherslu á að halda í húmorinn og gleðina þrátt fyrir erfiða mánuði. Samsett mynd
Þremur dögum eftir að Gunnar Örnúlfur Reynisson fékk heilablæðingu hafði hann áhyggjur af því að eiginkonu hans, Helgu Guðnadóttur, leiddist að sitja yfir honum á sjúkrahúsinu.
Helga fullvissaði hann um að svo væri ekki. Hún hefði prjónana sína og því leiddist henni aldrei. Eftir nokkra þögn leit Gunnar á hana og spurði:
„Viltu prjóna á mig heimferðarföt?“
Helga hafði einmitt prjónað fjölda heimferðarsetta, en tvö barnabörn þeirra fæddust í janúar. Gunnar hafði því oft setið við hlið hennar á meðan hún prjónaði á þau.
Þótt óskin hafi verið sett fram í gríni ákvað Helga að taka manninn sinn á orðinu. Sama kvöld hófst hún handa við að prjóna á hann heimferðargalla sem hann skyldi klæðast þegar hann útskrifaðist af legudeild Grensáss.
Gunnar Örnúlfur Reynisson í heimferðagallanum sem eiginkona hans, Helga Guðnadóttir, prjónaði á hann. Gallinn vakti mikla kátínu þegar Gunnar útskrifaðist af Grensási. Ljósmynd/Aðsend
Prjónaði milli þess sem hún lagði parket
Gunnar fékk heilablæðingu 4. júlí síðastliðinn og var ástand hans um tíma tvísýnt. Helga segir prjónaskapinn hafa hjálpað sér að halda geðheilsunni á meðan hann náði bata.
Hún hafði hvorki uppskrift né mál til að styðjast við og lét því hugmyndaflugið ráða för. Í færslu sinni í Facebook-hópnum Handóðir prjónarar segist hún hafa stuðst við lopapeysuuppskrift.
Verkefnið var þó langt í frá það eina sem hélt henni upptekinni. Hjónin stóðu einnig í flutningum og því var í nógu að snúast.
„Þannig að gallinn var prjónaður á milli þess sem að ég var að mála og parketleggja og taka upp úr kössum,“ segir Helga í samtali við mbl.is.
Upphaflega var gert ráð fyrir að Gunnar yrði á legudeild Grensáss út september. Endurhæfingin gekk hins vegar vonum framar og var hann útskrifaður 18. september, að sjálfsögðu í heimferðargallanum.
Helga hafði raunar ætlað að hafa hettu á gallanum en tíminn vannst ekki til þess. Gallinn reyndist líka heldur rúmur enda hafði hún engin mál til að fara eftir. Hún segir þó engan vafa leika á því að Gunnar ætli sér að nota hann áfram.
Heimferðin vakti mikla kátínu á Grensási. Að sögn Helgu biðu sumir starfsmenn meira að segja með að fara heim úr vinnunni þar til þeir höfðu séð Gunnar halda heim á leið í gallanum.
Búinn að veiða nokkrar „gæsir“
Þrátt fyrir gleðina hafa síðustu mánuðir verið hjónunum erfiðir. Gunnar lamaðist vinstra megin eftir heilablæðinguna og er enn í endurhæfingu.
Þegar Helga ræddi við mbl.is var Gunnar á sjúkrahúsi, en að sögn hennar gekkst hann undir aðgerð vegna æxlis við mænuna tveimur dögum áður. Að sögn Helgu gekk aðgerðin vel.
Þrátt fyrir mótlætið segir Helga Gunnar hafa sýnt mikið æðruleysi og verið staðráðinn í að ná eins góðum bata og mögulegt væri. Jákvæðni hans hafi smitað út frá sér á Grensási og verið öðrum sjúklingum hvatning.
Helga segir hann þó hafa sýnt mikið æðruleysi í veikindunum og verið staðráðinn í að ná eins góðum bata og mögulegt væri. Jákvæðni hans hafi smitað út frá sér á Grensási og verið öðrum sjúklingum hvatning.
Hann hafi meðal annars tileinkað sér að setja sér „gæs“, en skammstöfunin GÆS stendur fyrir orðin geta, ætla, skal. Þannig hafi hann sett sér markmið í endurhæfingunni og lagt sig fram um að ná þeim.
Helga segir hann þegar hafa náð nokkrum slíkum markmiðum.
Jákvæðnin besta lyfið
Hjónin hafa lagt áherslu á að halda í húmorinn og gleðina þrátt fyrir breyttar aðstæður. Helga segir það hafa skipt þau miklu máli að horfa fram á veginn.
Að hennar sögn sé besta lyfið að halda í gleðina og jákvæðnina.
„Lífið verður aldrei eins,“ segir Helga og bætir svo við: „Lífið þarf ekkert að verða slæmt.“
Að hennar sögn kom aldrei til greina að gefast upp þótt á móti blési.
„Og fyrir okkur voru þetta tvær leiðir. Það var annaðhvort að halda áfram eða gefast upp.“
Heimferðargallinn tengist þannig ekki aðeins óvenjulegu prjónaverkefni heldur einnig gleðinni yfir því að Gunnar skyldi komast heim eftir erfið veikindi.
„Hvað er betra en að fá annað tækifæri í lífinu og fá að fara heim í heimferðarsettið þó maður sé fullorðinn?“ segir Helga kímin að lokum.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
