Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum ekki eyland þó að við séum eyja
Utanríkismálin eru beintengd hagsmunum okkar hér innanlands. Utanríkismálin hafa verið í deiglunni allt kjörtímabilið og þegar ríkisstjórnin var mynduð var ákveðið að eina manneskjan með reynslu af ráðherrastörfum settist í stól utanríkisráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
„Við vorum sérstaklega að draga fram að við ætluðum að gera líka fyrir meira fyrir börn og ungmenni og ætlum að breyta þessu og við erum að gera það. Erum við búin að gera nóg? Nei, en við fórum ekki undir fram undir þeim formerkjum að það væri einhver stefna Sjálfstæðisflokksins eða annarra stjórnmálaflokka sem við værum að, að setja í forgrunn. En varðandi Norðausturkjördæmið þá var ég líka að draga það fram, sem mér fannst frábært af því við erum með reynslubolta innan okkar raða, mann eins og Eirík Björn Björgvinsson sem hefur verið bæjarstjóri bæði fyrir austan en líka á Akureyri, þekkir kjördæmið út og inn.
Þau einmitt óskuðu eftir, og ég ræddi við hann, að hann yrði tengiliðurinn þannig að við erum strax komin með mann sem er í rauninni innanbúðarmaður úr Norðausturkjördæmi. Hann mun sinna vel auðvitað Suðvesturkjördæmi eins og hann hefur gert fram til þessa en tekur á sig þá ábyrgð að vera tengiliður við Norðausturkjördæmið, þannig að þetta glæsilega og víðfeðma kjördæmi sem við þurfum að sinna vel, ætlum að gera það áfram og passa upp á ákveðna hluti og þurfum að gæta sérstaklega að. Ef flokkurinn ætlar að vera sterkur áfram þá þarf hann að sinna öllu landinu. Það erum við að gera.
Við þurfum að benda á bæði góð verk sem við erum að gera og við þurfum að passa upp á ákveðna hluti, að það verði ekki gerð mistök í þeim sem skipta landsbyggðina miklu máli og það er hægt að nefna ýmis mál en við þurfum að taka vel utan um fólkið alls staðar á landinu. Ég er að tala um fólkið, ég er ekki að tala um sérhagsmunaöflin. Ég er að tala fólkið, ég er að tala um almenning.“
Þar skilur á milli.
„Þar skilur á milli.“
Það hefur komið upp sú umræða og þær ábendingar að utanríkisráðherraembættið er gríðarlega álagsmikið ráðuneyti. Við höfum séð það áður að flokksformenn sem hafa gegnt þessu embætti, þeir hafa oft átt svona aðeins í vök að verjast í sínum flokki. Ég nefni Halldór Ásgrímsson. Það má nefna Jón Baldvin Hannibalsson. Hefurðu velt fyrir þér hvort utanríkisráðuneytið er það krefjandi tímalega, það er mikið um ferðalög og svona, að það komi niður á því að þú getir sinnt flokknum eins og best væri?
„Ég heyri eðlilegar þessar raddir en þegar við formuðum ríkisstjórnina þá var náttúrlega þá eins og er núna mikið öldurót í, í heimsmálunum og það voru að koma inn með Viðreisn, þrír nýir þingmenn að verða ráðherrar, ekki áður gegnt ráðherrastörfum sem er mikill munur á að vera þingmaður og síðan ráðherra og við ákváðum að það væri ágætt einmitt að hafa svolítið reynslumikinn stjórnmálamann í utanríkisráðuneytinu á þessum tímum og ég held að það hafi alveg sýnt sig að það, eða ég vona það að fólk sjái það að það hafi verið hjálplegt að vera með bæði þann bakgrunn sem ég hef og tengsl á þessum tímum, en ég sá það meðal annars í tillögum frá strategíuhópnum, sem verða kynntar stjórn innan tíðar, að þar eru mjög gagnlegar ábendingar sem eru hjálplegar einmitt til þess að brúa þetta bil og ábyrgðarkeðjan verður að vera skýr og þarf að vera skarpari. Ég í rauninni hlakka til að vinna úr þeim tillögum og ég sé alveg fram á það að geta haldið áfram að vera utanríkisráðherra en sinnt líka bæði flokknum mínum og innanlandsmálum betur. En ég vil líka geta þess að utanríkismálin á þessum tveimur árum, ég held sjaldan að þau hafa verið jafn mikil innanlandsmál eins og þessi tvö ár.“
Það held ég reyndar að sé alveg rétt.
„Utanríkismálin eru beintengd við hagsmuni Íslands hér innanlands að tryggja fyrir fyrirtækin okkar, opna markaði, ýta undir samkeppnishæfni þjóðarinnar með alþjóðatengslum og tryggja líka í samningum að við getum séð bæði vörur og þjónustu og fleira styrkjast hér innanlands og það er allt gert á grunni meðal annars utanríkismála, utanríkisviðskipta og og svo framvegis. Svo ég tali nú ekki um ef ég ætti að fara út í varnarmálin að þar skiptir gríðarlega miklu máli að við höfum náð að samþykkja núna fyrstu varnar- og öryggismálastefnu Íslands.
Við þurfum að treysta öryggi hér innanlands alveg eins og allar aðrar þjóðir. Þó við séum eyja þá erum við samt ekki eyland í hinum stóra heimi heimsmálanna eins og þau eru núna. Þannig að það er að mörgu að hyggja og ég er hins vegar afar stolt af ráðherrum Viðreisnar í ríkisstjórn. Mér finnst við sýna að við erum hugrökk, mér finnst við sýna að við erum kjörkuð. Að þó að við þurfum að fara út af ýmsum málum í gegnum hin erfiðustu svipugöng þá sjáum við alltaf ljósið við, við endann á gangamunnanum og það er ljósið sem er fyrir íslenskan almenning sem við erum að gera.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗