Kane undir hnífinn
Harry Kane gekkst undir aðgerð á ökkla í nótt eftir að hafa slitið liðband í vinstri ökkla í jafntefli Bayern München gegn Köln, 1:1, í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi.
Bayern staðfesti að aðgerðin hefði heppnast vel og mun enski landsliðsfyrirliðinn nú hefja endurhæfingu sína.
Kane verður frá í þrjá mánuði vegna meiðsla og því um mikinn skell að ræða fyrir hann og Bayern.
Kane vann á dögunum Gullboltann en hann er kominn með tíu mörk og ellefu stoðsendingar í sextán leikjum á leiktíðinni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗