Beint: Höfundar lesa upp úr glænýjum bókum í dag
Óskar Magnússon, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Valur Gunnarsson eru meðal þeirra höfunda sem lesa upp úr nýjum verkum sínum á Bókahátíð í Hörpu í dag. Samsett mynd
Rithöfundar lesa upp úr glænýjum bókum á Bókahátíð Félags íslenskra bókaútgefenda í Hörpu um helgina. Upplesturinn fer fram milli kl. 12 og 17 báða daga og er Brynhildur Björnsdóttir kynnir eins og undanfarin ár.
Alls munu sjötíu höfundar koma fram á upplestrardagskrá á Norðurbakkanum í Hörpu um helgina en upplestrinum verður einnig streymt á mbl.is eins og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.
Dagskráin laugardaginn 21. nóvember
Kl. 12-13
- Áslaug Kristjánsdóttir - Gerðu eins og ég segi
- Elísa Björg Þorsteinsdóttir - Kona að hálfu eftir Perumal Murugan
- Þórunn Guðmundsdóttir - Fleipur - sögur
- Karitas Sigurðardóttir - Leiðin heim
- Nanna Rögnvaldardóttir - Eitur í augum
- Hermann Stefánsson - Sauðburður
- Steindór Ívarsson - Ótti
Kl. 13-14
- Sigurrós Jóna Oddsdóttir - Traustabrestir
- Illugi Jökulsson - Þín fornaldar frægð
- Hjörtur H. Hjartarson - Harðjaxlinn ljúfi - Ævisaga Óla Þórðar
- Illugi Jökulsson - Eldsins ógn - Skaftáreldar og móðuharðindin
- Birgitta H. Halldórsdóttir - Mæðgurnar
- Auður Aðalsteinsdóttir - BirkiVist – BirkiVera: Birki í menningu, listum og lífinu
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir - Umrót
Kl. 14-15
- Birgitta H. Halldórsdóttir - Leitin
- Gunnar Dan - UFO 202
- Ragnheiður Gestsdóttir - Hvíldin
- Lilja Ósk Snorradóttir - Aumingi, mella, syndari og heilagur andi
- Sigrún Sigurðardóttir - Áfall hvað svo?
- Hjörleifur Hjartarson - Njála á hundavaði
- Margrét Bjarnadóttir - Varkár
Kl. 15-16
- Birgir Tjörvi Pétursson - Skuggar af Kili
- Rósa Magnúsdóttir - Kaldastríðsborg 1986
- Óskar Magnússon - Hvalamorð
- Magnús Sigurðsson - Skrílmálið
- Gerður Kristný - Míkadó
- Örvar Smárason - Það sem við sjáum þegar við lokum augunum
- Gylfi Pálsson - Út með færið
Kl. 16-17
- Valur Gunnarsson - Frelsisbjarmar
- Auður Ava Ólafsdóttir - Tengdasonur Íslands
- Halldór Guðmundsson - Líf í bókum
- Birna Anna Björnsdóttir - Hótel Héðinsfjörður
- Ragnheiður Kristjánsdóttir - Þurfamenn fá mannréttindi 1927
- Sigrún Elíasdóttir - Ástand miðaldra unglings
- Haukur Ólafsson - Byssan og ólífan
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
