Finnski herinn greindi drónaárás í Finnlandsflóa

Erlent | AFP | 21.11.2026 | 11:52

Ráðuneytið greindi ekki frá því hver stóð að árásinni. Undanfarið hafa Úkraínumenn hert árásir sínar á skotmörk langt inni í Rússlandi, fjarri víglínunni. AFP

Finnski herinn varð var við drónaárás á rússneskt flutningaskip í Finnlandsflóa í morgun, að sögn finnska varnarmálaráðuneytisins.

Árásin var gerð á alþjóðlegu hafsvæði vestur af eynni Suursaari í austanverðum flóanum.

Ráðuneytið greindi ekki frá því hver stóð að árásinni. Undanfarið hafa Úkraínumenn hert árásir sínar á skotmörk langt inni í Rússlandi, fjarri víglínunni.

Spenna hefur aukist á Eystrasalti frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022. Vesturlönd hafa sakað rússnesk stjórnvöld um að stunda „blandaðan hernað“ á þessu hernaðarlega mikilvæga hafsvæði.

Finnlandsflói gengur austur úr Eystrasalti og liggur að ströndum Finnlands, Eistlands og Rússlands. Flóinn er mikilvæg siglingaleið fyrir Rússland og um hann liggur leiðin til Pétursborgar, fyrrverandi höfuðborgar landsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab