Verðlaunabóndi handtekinn – Smyglaði fíkniefnum í banönum
Það virðist sem verðlaunabóndinn Dhanesh Nair, sem er 31 árs, hafi ákveðið að stunda aukabúgrein við hlið hefðbundins landbúnaðar því hann var nýlega handtekinn, grunaður um að smygla fíkniefnum í banönum.
Hann var verðlaunaður 2022 fyrir að vera besti ungi bóndinn í Kerala ríkinu á Indlandi.
The Independent segir að þegar hann var handtekinn hafi hann verið með hassolíu og MDMA í fórum sínum.
Lögreglan segir að hann hafi verið höfuðpaurinn í fíkniefnahring sem smyglaði miklu magni af MDMA frá Karnataka til Kerala. Er Nair sagður hafa fengið ungt fólk til að dreifa fíkniefnunum til bæði þeirra sem seldu þau og þeirra sem neyttu þeirra.
Lögreglan segir að hann hafi notað bananaekrur og bújörð í Nanjangud sem skálkaskjól fyrir fíkniefnaviðskiptin. Að sögn lögreglunnar var hann með myndbönd í farsíma sínum sem sýna þegar fíkniefni voru falin í bananaklösum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗