Undrandi á skilaboðum: „Get ekkert beðið í fimm ár“
Gunnari Þór Jónssyni brá í brún þegar hann opnaði skilaboð á Heilsuveru í vikunni sem leið þar sem honum var tilkynnt að hann yrði að bíða í fjögur til fimm ár eftir augasteinaskiptum á Landspítalanum.
„Þetta er nú sennilega einfaldasta augnaðgerð sem hægt er að gera. Það er að skipta um augastein. Það tekur tíu mínútur, segja þeir,“ segir Gunnar í samtali við mbl.is.
Hann hafði búist við að biðtíminn yrði einhver, jafnvel eitt eða tvö ár, en ekki fjögur eða fimm.
Hann segist hafa afþakkað plássið á biðlistanum og bókað tíma í aðgerðina hjá Sjónlagi, sem er einkarekið. Þar fékk hann tíma strax í næstu viku en þarf að greiða um 400 þúsund krónur fyrir.
„Ég verð áttræður núna í febrúar og ég get ekkert beðið í fimm ár eftir að fá skýra sjón. Þetta er sem sagt betra augað sem er komið ský á og ég hef ekki tíma til að bíða eftir að fá betri sjón,“ segir Gunnar.
„Þetta er farið að hamla lestri og svona. Þannig að maður leggur frekar út fyrir einhverju til þess að fá þessi gæði aftur, að geta lesið.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗