Partíhugmynd fyrir þá súpusjúku
Fátt yljar betur en góð súpa í skemmtilegum félagsskap. Samsett mynd/Nathan Dumlao/Megan Bucknall/Max Griss/Cala
Nánast daglega spretta upp ný trend á Instagram og TikTok, ekki síst tengd matargerð og matarboðum. Þar má finna skemmtilegar hugmyndir sem margar hverjar slá í gegn.
Eitt þeirra er svokallað „soup swap“, eða súpuskipti.
Hugmyndin er afar einföld: Fjölskyldan, vinahópurinn, frænkuhópurinn eða vinnufélagarnir hittast og hver mætir með sína heimagerðu súpu. Þannig fá allir að smakka ólíkar súpur og í þessum kulda hljómar fátt betur en heit og gómsæt súpa, hvað þá nokkrar!
Hér eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga áður en boðið er til súpuveislu:
- Ákveðið hver kemur með hvað
Látið gesti velja súpu fyrir fram svo það verði fjölbreytt úrval á borðum.
- Hafa leið til að halda súpunum heitum
Hægeldunarpottar eða hitaplötur geta komið að góðum notum. Ákveðið fyrir fram hvernig þið ætlið að halda súpunum heitum.
- Merkið pottana
Setjið lítið spjald við hvern pott með upplýsingum um hvaða súpa er í boði og hvað er í henni. Gott er að hafa þetta á hreinu, sérstaklega ef einhver í hópnum er með fæðuofnæmi, óþol eða þarf að forðast ákveðin hráefni.
- Einfalt meðlæti er málið
Gott brauð, brauðteningar, sýrður rjómi, rifinn ostur og vorlaukur geta sett punktinn yfir i-ið. Sniðugt er að einn í hópnum sjái um meðlætið.
- Upplagt að nota pappaglös
Til að minnka uppvaskið eftir súpupartíið er sniðugt að bjóða upp á lítil pappamál. Þannig geta gestir smakkað smá af hverri súpu án þess að verða saddir eftir fyrsta skammtinn.
- Hvetjið gesti til að koma með box fyrir afgangana
Það er um að gera að biðja gesti að mæta með hólfaskipt nestisbox með þéttum lokum svo þeir geti tekið nokkrar súpur með sér heim, notið þeirra næstu daga eða fryst og átt á köldum vetrardögum.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗