„Það var mikil valdabarátta“
Margrét Jónsdóttir opnar sýninguna Lífsblómið í dag kl. 15 í SÍM Gallery, Hafnarstræti 16. Þar má sjá stór vatnslitamálverk sem hafa verið tvö ár í vinnslu.
„Verkin á sýningunni eru framhald af þriggja mánaða sumarsýningu í Gallerí Gróttu sem ég hélt eftir covid árið 2022. Verkin voru unnin út frá frumum og vírusum og því ósýnilega í tilverunni og tengjast eldri verkum, allt frá 1976. Verkin tengjast einnig tveimur alvarlegum slysum þar sem ég brotnaði illilega, í bæði skiptin fjórum dögum eftir komu til Frakklands sem er nú ansi sérkennilegt. Það var bara kominn tími á að sýna þessi verk,“ segir Margrét.
Hefur gaman af því að ögra
„Ég hef gaman af því að ögra því sem talið er sannleikur og heilagt af mannverunni og því vinn ég út frá hinu heilaga formi „The Flower of Life“ sem er einnig frumform fyrir margt annað svo sem frumur og veirur. Nafnið á myndröðinni er því „Lífsblómið“ og ber sýningin einnig það nafn. Myndröðin tengist erfiðri lífsreynslu en einnig eldri verkum og því að vera kona í menningarheimi karla. Þá hafði eldgosið í Grindarvík líka áhrif því ég bý skammt frá og hafði ógnina í bakgarðinum. Það er aldrei neitt eitt hjá mér.“
Þú hefur starfað sem myndlistarmaður í áratugi. Hefur afstaða þín til listarinnar breyst á þessum tíma?
„Að starfa í þessari grein þýðir fátækt og reynir á öll sambönd. Hér áður fyrr var sagt að ef þú ætlaðir þér að gera myndlistina að ævistarfi þá gætir þú hvorki gert þér vonir um fjölskyldu né börn því þá gætirðu ekki einbeitt þér að listinni eins og þyrfti. Það var helsta ástæðan fyrir því að starfið þótti ekki hæfa konum. Í dag er ég sannfærð um að þetta sé rétt en til þess að geta lifað þannig lífi þarf mikinn stuðning, bæði andlegan og fjárhagslegan, og því tilheyrði listin efri stéttinni. Ég veit ekki hvort afstaða mín hafi breyst en í mínum huga getur myndlistin aldrei orðið iðnaður eða framleiðsluvara, þetta er annað og dýpra svið.
Það er ekki hægt að bera saman tímann sem ég var að stíga mín fyrstu skref og í dag, svo miklar breytingar hafa orðið á öllum sviðum þjóðfélagsins. Hins vegar virðist fólk hafa meiri peninga milli handanna núna en áður, hvernig sem stendur á því.“
Þú varst meðal stofnenda Gallerís Suðurgötu 7. Hvernig minnistu þess tímabils?
„Það kemur margt upp í hugann og það voru nú ekki allir hrifnir af því sem við vorum að gera en vinnan við Suðurgötuna var launalaus og allur kostnaður lenti einnig á okkur sem stóðum fyrir starfseminni. Suðurgatan var óhefðbundið gallerí og opið fyrir nýjum straumum. Við buðum ungu fólki að taka þátt í sýningum með okkur sem gaf mörgum tækifæri. Það var hins vegar mikil valdabarátta, sem er ennþá.
Þetta tímabil upplifi ég sem kona í menningarheimi karla og óraunhæfar og fordómafullar kröfur gerðar til kvenna og veggir sem maður rakst stöðugt á. Ekkert var hægt að gera nema með klíkuskap og ættartengslum,“ segir Margrét en sýning hennar stendur til 8. desember.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


