Ásdís gefur ekkert eftir: Samfélagsbanki geti reynst skattgreiðendum dýrkeyptur
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, stendur föst á þeirri skoðun sinni að ríkið eigi að selja Landsbankann og nýta söluandvirðið til að greiða niður ríkisskuldir. Hún telur að þannig megi skapa um tíu milljarða króna fjárhagslegt svigrúm á ári og varar við hugmyndum um að breyta Landsbankanum í samfélagsbanka.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Ásdísar í Morgunblaðinu í dag þar sem hún gagnrýnir sjónarmið um áframhaldandi ríkiseign á bankanum.
„Ráðherra virðist hins vegar horfa fram hjá þeim verulega fórnarkostnaði sem felst í því að binda hundruð milljarða króna af fé skattgreiðenda í bankarekstri í stað þess að greiða niður ríkisskuldir,“ skrifar Ásdís og vísar þar til afstöðu fjármálaráðherra.
Vilhjálmur sagði hugmyndina glórulausa
Eins og DV greindi frá í síðustu viku gagnrýndi Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hugmyndir Ásdísar harðlega og sagði glórulaust að selja Landsbankann.
Sjá einnig: Vilhjálmur hjólar í hugmynd Ásdísar – „Glórulaust að selja Landsbankann“
Vilhjálmur benti meðal annars á að bankinn hefði greitt 34,9 milljarða króna í arð á árinu og lagði til að ríkið nýtti eignarhald sitt til að breyta Landsbankanum í samfélagsbanka með lægri útlánsvöxtum og þjónustugjöldum.
Ásdís nefnir Vilhjálm ekki á nafn í grein sinni en tekur sérstaklega fyrir hugmyndir um samfélagsbanka.
„Hugmyndin um samfélagsbanka sem býður almenningi lægri vexti kann að hljóma vel en lægri útlánavextir verða ekki til úr engu.“
Hún segir að ef ríkisbanki bjóði lægri útlánsvexti en fjármögnunarkostnaður og útlánaáhætta réttlæti þurfi einhver að bera kostnaðinn.
„Hann birtist í minni arðsemi, lægri arðgreiðslum eða aukinni áhættu, og að lokum eru það skattgreiðendur sem bera kostnaðinn sem fellur á ríkið.“
Hafnar frekari skattlagningu
Ásdís tengir sölu Landsbankans jafnframt við fjármögnun samgöngusáttmálans á höfuðborgarsvæðinu.
„Sem bæjarstjóri Kópavogsbúa hafna ég því alfarið að íbúar höfuðborgarsvæðisins verði skattlagðir enn frekar til að fjármagna hlut ríkisins í samgöngusáttmálanum.“
Ásdís segir Ragnar Árnason og Þórarin Hjaltason hafa ranglega haldið því fram í grein í Morgunblaðinu fyrr í vikunni að hún vilji nýta söluandvirði Landsbankans til að fjármagna samgöngusáttmálann.
„Það er ekki rétt,“ segir hún og áréttar að hún vilji þess í stað greiða niður ríkisskuldir með söluandvirðinu og nýta árlegan vaxtasparnað til uppbyggingar innviða, meðal annars vegna samgöngusáttmálans.
Ásdís segir að lokum að hlutverk ríkisins eigi að vera að tryggja traust fjármálakerfi og hafa eftirlit með því, en ekki að reka viðskiptabanka í samkeppni við einkaaðila.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗