Móðir Þórunnar lést í skíðaferð með fjölskyldunni
Þórunn segir það hafa verið erfitt að segja nýjum vinum frá því að móðir hennar væri látin. mbl.is/Árni Sæberg
Þórunn Hanna Gunnarsdóttir missti móður sína árið 2018 þegar fjölskyldan var stödd í skíðaferð í Frakklandi. „Við vorum bara í skíðaferð, fjölskyldan, og mamma varð bráðkvödd um miðjan dag uppi í fjöllunum. Hún fékk hjartaáfall,“ segir Þórunn í samtali við Morgunblaðið, en hún ræddi missinn í tilefni af Alþjóðlegum degi barna í sorg, síðastliðinn fimmtudag.
Á þessum tíma var hún í áttunda bekk og fermingarundirbúningur stóð yfir. „Ég var ótrúlega heppin með bakland og það var margt fólk sem greip okkur. Það tók ferminguna bara að sér og hjálpaði okkur mjög mikið.“
Í gegnum fermingarfræðsluna hafði Þórunn kynnst Jónu Hrönn Bolladóttur presti og komst fyrir hennar tilstilli í kynni við Örninn, minningar- og styrktarsjóð, sem var stofnaður sama ár.
Tilfinningarnar urðu venjulegri
Þar kynntist hún öðrum börnum sem höfðu misst foreldra eða systkini og fann vettvang þar sem hún gat rætt missinn án þess að óttast viðbrögð annarra. „Það hjálpaði mér svo mikið að læra að tala um sorgina og hafa vettvang þar sem maður má tala um hana án þess að vera einhvern veginn að eyðileggja stemninguna í kringum sig,“ útskýrir hún.
Þórunn segir að það hafi skipt sig miklu máli að geta rætt móður sína og rifjað upp minningar um hana án þess að öðrum þætti það óþægilegt.
„Tilfinningarnar sem maður var með, sama hvernig þær voru, urðu einhvern veginn venjulegri. Maður var ekki jafn frábrugðinn öllum hinum. Ef manni leið á einn veg eða annan þá var alltaf einhver annar sem hafði upplifað það líka.“
Fyrir utan Örninn fann hún hins vegar oft fyrir því að fólk vissi ekki hvernig það átti að bregðast við þegar hún minntist móður sinnar. „Ég fann oft að fólki fannst það óþægilegt, eins og það ætti að vera leitt yfir einhverri skemmtilegri minningu sem ég var að rifja upp.“
Að passa upp á aðra
Hún upplifði þetta sérstaklega sterkt þegar kaflaskil urðu í lífi hennar, hún hóf nám í menntaskóla og eignaðist nýjan vinahóp. Það reyndist henni nefnilega erfitt að segja nýju vinunum frá því að móðir hennar væri látin og eftir því sem lengri tími leið án þess að hún nefndi missinn varð það sífellt erfiðara. „Maður er alltaf einhvern veginn að passa þann sem maður er að segja frá frekar en sjálfan sig,“ segir hún.
Þátttakan í Erninum hjálpaði henni að takast á við þessar aðstæður. Hún fékk æfingu í að segja frá missinum í öruggu umhverfi þar sem engum fannst það óþægilegt eða varð vandræðalegur. Eitt það mikilvægasta sem Þórunn lærði var að hún mætti leyfa sér að gleðjast þrátt fyrir sorgina. Hún rifjar upp að fyrst eftir andlát móður sinnar hafi sér fundist hún eiga að vera leið öllum stundum.
Viðtalið við Þórunni birtist í fimmtudagsblaði Morgunblaðsins, en áskrifendur geta nálgast það hér í heild sinni:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗