Myndskeið: Í áfalli eftir fáránlegt sjálfsmark
Francisco Moura skoraði fáránlegt sjálfsmark í sigri stórliðs Porto á C-deildarliði Paredes í portúgölsku bikarkeppninni í fótbolta í Porto í gærkvöldi.
Venjulegum leiktíma og framlengingu lauk með 1:1-jafntefli en blessunarlega fyrir Moura vann Porto leikinn í vítakeppni.
Seko Fofana hafði komið Porto yfir á 41. mínútu leiksins en á 57. mínútu jafnaði Paredes metin eftir að Moura reyndi að hreinsa boltann en setti hann snyrtilega í eigið net.
Myndskeið af sjálfsmarkinu má sjá hér að neðan:
🚨🎥| Francisco Moura scored this OWN GOAL with Porto in the Portugal Cup. 😳 https://t.co/r7EDKLJkBu
— Kalshi FC (@KalshiFC) November 20, 2026
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗