Missti ævisparnaðinn á einni nóttu – Það sem hann sagði eiginkonunni vekur athygli

Fókus

Laugardaginn 21. nóvember 2026 11:00

John Malkovich. Mynd/60 Minutes

Hollywood-leikarinn John Malkovich hefur rifjað upp hvernig hann missti nánast allan ævisparnað sinn í einu umfangsmesta fjársvikamáli sögunnar.

Leikarinn, sem er 72 ára, lýsir meðal annars augnablikinu þegar hann þurfti að segja eiginkonu sinni að fjárhagur fjölskyldunnar væri í rúst.

Ástralski miðillinn realestate.com.au fjallaði um sögu leikarans í vikunni og rifjaði upp nýtt viðtal hans við bandaríska fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes, þar sem hann lýsti því hvernig hann brást við tíðindunum.

Fór út að kaupa sígarettur

Það var í desember árið 2008 sem Malkovich sneri heim til Bandaríkjanna eftir að hafa leikstýrt leiksýningu í Mexíkóborg. Þegar heim var komið sá hann ljósmynd af fjármálamanninum Bernie Madoff í handjárnum.

Malkovich áttaði sig fljótt á því hvað handtakan þýddi fyrir hann og fjölskylduna.

„Ég hugsaði með mér: „Jæja, þetta gæti orðið áhugavert“,“ rifjaði hann upp.

Hann gekk síðan til eiginkonu sinnar og sagði henni tíðindin með heldur óvenjulegum hætti.

„Ég ætla aðeins að skreppa fyrir hornið og kaupa sígarettupakka. Við eigum við smávægilegt vandamál að stríða. Bernie Madoff var handtekinn,“ rifjaði Malkovich upp.

Malkovich var raunar hættur að reykja á þessum tíma. Sígarettukaupin voru aðeins afsökun til að komast út og ná áttum eftir að hafa áttað sig á því að nánast allt sem hann hafði unnið sér inn á ferlinum væri glatað.

Neitaði að vorkenna sjálfum sér

Madoff hafði um árabil rekið umfangsmikið svikakerfi þar sem þúsundir fjárfesta töpuðu stórfé. Meðal þeirra voru fjölmargir þekktir einstaklingar, þar á meðal Steven Spielberg og leikarahjónin Kevin Bacon og Kyra Sedgwick.

Malkovich sagði í viðtali við The Guardian árið 2020 að fyrrverandi fjármálaráðgjafi hans hefði fjárfest nánast öllum peningum þeirra hjóna hjá Madoff.

Fjárhagshrunið neyddi leikarann til að taka að sér fleiri launuð verkefni og draga verulega úr útgjöldum. Meðal annars hætti hann að greiða ýmsan kostnað fyrir vini og ættingja. Hann hætti jafnframt að verja háum fjárhæðum í framleiðslu kvikmynda, en slík verkefni höfðu áður kostað hann töluvert fé án þess að skila hagnaði.

Þrátt fyrir áfallið neitaði Malkovich að líta á sjálfan sig sem fórnarlamb.

Hann sagðist hafa áttað sig á því að flestir sem hefðu nokkurn tíma lifað myndu aldrei eignast einn tíunda af því sem hann hafði tapað. „Haltu áfram með lífið,“ sagði hann við sjálfan sig.

Madoff var dæmdur í 150 ára fangelsi árið 2009 og lést í fangelsi árið 2021.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab