Harden minnti rækilega á sig

James Harden fór á kostum.

James Harden fór á kostum. AFP/Jason Miller

James Harden fór á kostum í sigri Cleveland Cavaliers á Indiana Pacers, 128:119, í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta í Cleveland í nótt. 

Harden skoraði 51 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar í leiknum en Cleveland hefur nú unnið níu leiki og tapað átta. 

Slóveninn Luka Doncic fór þá fyrir sínum mönnum þegar Los Angeles Lakers sigraði Sacramento Kings, 106:104, í Los Angeles. 

Lakers er með 14 sigra og aðeins þrjú töp en Doncic skoraði 25 stig, tók fjögur fráköst og gaf átta stoðsendingar. 

Önnur úrslit: 

Atlanta Hawks 111:97 Charlotte Hornets
Detroit Pistons 102:105 Toronto Raptors
Brooklyn Nets 111:113 Orlando Magic
Oklahoma City Thunder 126:120 New Orleans Pelicans
Chicago Bulls 94:98 Washington Wizards
Utah Jazz 101:111 Phoenix Suns
Denver Nuggets 133:124 Houston Rockets

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab