ESB gerir heimsendingarsamning við Nígeríu

Evrópusambandið er að herða flóttamanna- og förufólksstefnu sína og einn liður í því er nýr samningur við Nígeríu um heimsendingu á fólki frá Nígeríu.

Samningurinn opnar fyrir möguleikann á að aðildarríki ESB geta sent hælisleitendur frá Nígeríu, sem hafa fengið höfnun á hælisumsókn sinni, aftur heim.

Þetta er liður í tilraunum ESB til að tryggja að aðeins fólk, sem hefur dvalarleyfi, verði í Evrópu.

Samningaviðræðurnar tóku mörg ár en nú hefur samningurinn verið undirritaður.

Að sögn ESB fór samningurinn að hafa áhrif áður en hann var undirritaður því um hríð hefur verið ljóst að samningar myndu nást og það leiddi til mikillar fækkunar á ólöglegum komum nígerískra ríkisborgara til Evrópu.

2016 voru rúmlega 37.000 ólöglegar komur nígerískra ríkisborgara skráðar hjá ESB. Frá janúar fram í ágúst á þessu ári voru þær 675.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab