Stærstu verkefnin á Íslandi og í Noregi
Umfangsmestu verkefni heims á sviðum landeldis eru á Íslandi og í Noregi, samkvæmt nýrri samantekt.
Fréttavefurinn SalmonBusiness hefur birt lista yfir fimm stærstu verkefni heims sem nú eru í uppbyggingu, en sést yfir Eldisgarð Samherja í upptalningunni.
Í stað þess að eiga þrjú af fimm stærstu verkefnum heims á Ísland því fjögur af sex stærstu verkefnunum.
Mest framleiðsla er fyrirhuguð í fullbyggðri eldisstöð First Water í Þorlákshöfn, 60 þúsund tonn á ári, og trónir því fyrirtækið á toppi listans.
Í neðsta sæti listans er svo fyrirhugað eldi að 36 þúsund tonnum hjá Salmon Evolution á Indre Harøy í Noregi.
Á vef Samherja er reyndar talað um eldi allt að 40 þúsund tonnum en stjórnendur verkefnisins töluðu í nýlegu viðtali um að stefnt væri að 36 þúsund tonna framleiðslu í fullbyggðri eldisstöð.
Atlantic Sapphire ekki með
Til að vera með í upptalningunni þurfa að vera hafnar framkvæmdir við uppbyggingu landeldisins núna í nóvember og fjármögnun trygg fyrir yfirstandandi uppbyggingu. Síðan er litið til endanlegra áforma um stærð við röðunina á lista.
Metnaðarfull áform Atlantic Sapphire um 220 þúsund tonna eldi í Miami í Bandaríkjunum eru ekki talin með þar sem framkvæmdir við uppbyggingu hafa verið stöðvaðar, að minnsta kosti í bili.
„Þar er áhersla lögð á að efla framleiðsluhætti og arðsemi í starfseminni sem þegar er komin í gang áður en tekin er ákvörðun um frekari stækkun,“ segir í umfjöllun SalmonBusiness.
Endurskoðaður listi yfir sex umfangsmestu verkefnin fylgir hér fyrir neðan:
- 60.000 tonn – First Water – Þorlákshöfn, Íslandi
- 48.000 tonn – Andfjord Salmon – Kvalnes, Noregi
- 40.000 tonn – Thor Salmon – Þorlákshöfn, Íslandi
- 36.000 tonn – Eldisgarður Samherja – Reykjanes, Íslandi
- 36.000 tonn – Laxey – Vestmannaeyjar, Íslandi
- 36.000 tonn – Salmon Evolution – Indre Harøy, Noregi
Alla umfjöllun SalmonBusiness þar sem farið er nánar yfir áformin hjá hverju og einu fyrirtæki á lista miðilsins má lesa HÉR.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗