Safnað fyrir bágstödd börn á hamfarasvæðum í Nepal

10 ára drengur með afa sínum og ömmu sem mistti báða foreldra sína í hamfaraflóðunum sl. ágúst. Myndin er tekin þegar hann tók á móti 2000 dollara styrk INSO nýverið. Sherpa Dendi er lengst til hægri á myndinni.

Tómas Guðbjartsson læknir hefur ásamt fleirum hrundið af stað söfnun til styrktar bágstöddum í Nepal. Þar hefur hvert áfallið dunið yfir á síðustu árum.

Þetta á ekki síst við um fjallahéruð Himalaja þar sem um 100.000 sjerpar búa, flestir í nágrenni Everest. Árin 2014 og 2015 urðu miklir jarðskjálftar í Nepal þar sem þúsundir misstu heimili sín og ástvini. Einn þeirra er Sherpa Dendi, ferðaskipuleggjandi og félagi Tómasar.

Tómas Guðbjartsson og Sherpa Dendi standa að söfnuninni. Fyrir aftan þá má sjá fjöllin Everest og Nupste.

Í haust hefur síðan kyngt niður snjó í norðurhluta Nepals sem hefur valdið mannskæðum snjóflóðum.

Mestu hamfarirnar urðu 26. ágúst sl. þegar risastór bergskriða í Langtang-héraði rétt hjá landamærunum við Tíbet barst ofan í Trishuli-ána og olli miklu flóði. Þar létust vel á annað þúsund manns. Enn er hátt í 6.000 manns saknað.

Þarna misstu mörg börn foreldri sitt, m.a. sjerpabörn í einu fátækasta héraði Nepals, Taksindu. Margir fjölskyldufeður þar unnu sem fjallaleiðsögumenn og fórust í hamförunum.

Fátæk munaðarlaus börn í Tacsindu - áður en þau fengu hlý föt frá INSO. Skólabúningar draga úr mismunun barna vegna tekna foreldra.

Í söfnuninni nú einbeita Tómas og Sherpa Dendi sér að stuðningi við fátæk börn í heimabæ Dendis. Hugmyndin er að kaupa skólagögn fyrir 300 börn og sömuleiðis hlý föt fyrir veturinn.

Munaðarlausir drengir í munkaklaustri í rúmlega 3000 m hæð ofan Tacsindu eftir að hafa tekið vð hlýjum flísfatnaði frá INSO

Einnig er fyrirhugað að safna fé til að kaupa tölvur fyrir fátækustu skólana og farsíma fyrir foreldrana. Þeir eru mikilvæg öryggistæki í fjöllunum og gera þeim betur kleift að verða sér úti um vinnu.

Ef einhverjir vilja styrkja söfnunina er hægt að leggja inn á reikning 0137-05-070295, kt. 110165-3829).

Tvær stúlkur í skólabúningum frá INSO.

Tvær stúlkur í skólabúningum frá INSO.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab