Fékk 100 þúsund króna boð í bláan Opal

Guðjón Örn Helgason hirti tvo renninga af bláum Opal á matvælalager skömmu eftir aldamót. Samsett mynd

Guðjón Örn Helgason, sérfræðingur í mannauðsmálum, sá fyrir sér að einhver byði fimm þúsund kall þegar hann auglýsti fjóra óopnaða pakka af bláum Opal til sölu í Facebook-hópnum Brask og brall.

Nú hefur honum verið boðnar hundrað þúsund krónur í þá, eða 25 þúsund krónur á pakkann.

„Ég er búinn að fá alveg óhemju af einkaskilaboðum, hef ekkert náð að svara þessu. Ég er kominn með tilboð sem mig óraði ekki fyrir,“ segir Guðjón í samtali við mbl.is.

Yfir hundrað manns höfðu þá líkað við færsluna. Guðjón átti jafnframt enn eftir að fara yfir hluta skilaboðanna þegar tilboðið barst.

Hirti átta pakka á matvælalager

Guðjón vann á matvælalager skömmu eftir aldamót. Þar stóð bretti með útrunnu sælgæti sem starfsmenn máttu hirða. Á brettinu fann hann tvo óopnaða renninga af bláum Opal með fjórum pökkum í hvorum.

„Þetta er nú örugglega sniðugt að eiga,“ hugsaði hann með sér og tók báða.

Þá var blái Opalinn að hverfa úr verslunum eftir rúma hálfa öld. Rauðu Opaltöflurnar komu á markað árið 1945 og þær bláu fylgdu skömmu síðar.

Í september 2005 tilkynnti Nói Síríus að framleiðslu á bláum Opal yrði hætt þar sem eitt helsta bragðefnið fékkst ekki lengur. Töflurnar innihéldu örlítið af klóróformi sem gaf þeim einstakt og eftirminnilegt bragð.

Pakkarnir átta runnu út 26. október 2005 og eru enn í upprunalega plastinu. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta er bara safngripur“

Renningarnir lágu í kassa uppi á háalofti hjá Guðjóni í rúm tuttugu ár. Á dögunum rakst hann á þá fyrir tilviljun þegar hann var að gramsa í kassanum. Honum fannst vera „einhver svona nostalgíustemning yfir þessu“ og datt í hug að einhver hefði gaman af að eignast pakkana. Hann birti því mynd af þeim á Facebook.

„Er með fjóra bláa OPAL pakka óopnaða ennþá í plastinu. Runnu út 26.10.2005. PM fyrir tilboð ef þú vilt gefa skemmtilegustu jólagjöfina í ár 🙂,“ skrifaði hann í færslunni.

„Þetta er partur af þjóðarvitundinni þannig að mér datt alveg eins í hug að fá einhver viðbrögð þó að konan mín hafi pínu hlegið að mér þegar ég setti þetta á Facebook,“ segir Guðjón og bætir við:

„En þetta skiptir fólk máli og þetta er bara safngripur.“

Guðjón stakk upp á bláum Opal sem jólagjöf þegar hann auglýsti pakkana í Facebook-hópnum Brask og brall. Ljósmynd/Aðsend

„Ég gat ekki neitað þessu tilboði“

Líklega er orðið fátítt að rekast á heilan renning af bláum Opal í upprunalega plastinu. Guðjón hafði ætlað að halda öðrum renningnum eftir en áhuginn á þeim fyrri fékk hann til að hugsa sig um. 

„Ég gat ekki neitað þessu tilboði sem ég fékk,“ segir hann um hundrað þúsund króna boðið í fyrri renninginn.

Hefur þú sjálfur freistast til að opna einn pakka til að rifja upp bragðið?

„Veistu, ég þori því ekki. Þetta er auðvitað meira en tuttugu ára gamalt. Þannig að ég ætla að leyfa þeim sem kaupir þetta að gera það,“ segir hann léttur í lund að lokum.

Eftir samtalið lét Guðjón blaðamann vita að hann hefði selt hinn renninginn á 80 þúsund krónur.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab