Átakanlegt útkall hefur fylgt Sigurði árum saman: „Mér var ekki boðin áfallahjálp“
Ritstjórn DV
Laugardaginn 21. nóvember 2026 10:00
Sigurður Árni Reynisson kennari.
Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, rifjar upp átakanlegt útkall sem hefur fylgt honum árum saman. Hann segir að honum hafi ekki verið boðin áfallahjálp eftir að hafa komið á vettvang þar sem drengur á grunnskólaaldri hafði tekið eigið líf.
Þetta kemur fram í aðsendum pistli Sigurðar á Vísi í dag þar sem hann fjallar um andlegt álag lögreglumanna og mikilvægi þess að þeir fái faglegan stuðning.
Sigurður kom meðal annars að rannsókninni á morðinu á Birnu Brjánsdóttur árið 2017. Hann segir að viðtal við Ragnar Jónsson, fyrrverandi starfsfélaga sinn sem einnig kom að rannsókninni, árið 2024 hafi vakið hann til umhugsunar um þau spor sem erfið mál geta skilið eftir.
„Ég hafði enga hugmynd um að reynslan hefði haft þessi áhrif á hann og fór ósjálfrátt að velta því fyrir mér hversu lítið við vitum stundum um það sem samstarfsfólk okkar ber með sér,“ segir hann.
Fann tárin koma
Sigurður rifjar upp útkall fyrir rúmum áratug þegar hann var kallaður á vettvang þar sem drengur á grunnskólaaldri hafði tekið eigið líf.
„Ég stóð með fjölskyldu drengsins þegar faðir hans þurfti að færa móðurinni fréttirnar. Ég heyrði örvæntinguna í rödd hans og síðan viðbrögð hennar þegar hún áttaði sig á því sem hafði gerst. Þetta var sársauki sem engin orð gátu mildað og ég stóð þarna sem lögreglumaður, en um leið sem manneskja sem varð vitni að því þegar líf fjölskyldu breyttist á einu augabragði,“ segir hann.
„Ég man að ég fann tárin stíga upp en þerraði þau áður en þau komu fram. Ég taldi mig þurfa að halda ró minni og vera sá sem aðrir gætu reitt sig á þegar þeir sjálfir höfðu misst alla fótfestu.“
Hann segist hafa haldið áfram störfum eins og ekkert hefði í skorist.
„Eftir þetta útkall var mér ekki boðin áfallahjálp. Ég óskaði heldur ekki eftir henni, enda taldi ég mig ekki þurfa á slíkri aðstoð að halda.“
Það hafi ekki verið fyrr en mörgum árum síðar sem hann áttaði sig á því hversu djúp spor reynslan hefði skilið eftir.
„Við megum ekki gleyma manneskjunni“
Sigurður telur mikilvægt að lögreglumenn fái reglubundna faghandleiðslu án þess að þurfa sjálfir að óska sérstaklega eftir henni.
„Með því á ég ekki við að lögreglumenn eigi að vera skyldaðir til að ræða persónulegar tilfinningar sínar eða að hvert erfitt verkefni kalli á sérstaka áfallavinnslu. Faghandleiðsla hefur víðari tilgang. Hún getur skapað öruggan vettvang þar sem lögreglumenn fá tækifæri til að skoða eigin ákvarðanir, samskipti, siðferðileg álitamál og viðbrögð við krefjandi aðstæðum með aðstoð fagmanns sem hefur þekkingu til að leiða slíka ígrundun.“
Hann tekur fram að stuðningsúrræði séu þegar til staðar innan lögreglunnar en telur að betur megi standa að málum. Það sé munur á því að bjóða aðstoð þegar eitthvað sérstakt kemur upp og því að byggja upp faglega umgjörð sem fylgir lögreglumönnum í gegnum starfsævina.
„Við höfum komið upp ítarlegum kerfum til að skrá rannsóknir, varðveita sönnunargögn og fara yfir ákvarðanir lögreglumanna. Það er nauðsynlegt og sjálfsagt. En við megum ekki gleyma manneskjunni sem vinnur verkið. Þegar rannsókn lýkur er hægt að loka málsgögnunum, setja þau í geymslu og halda áfram í næsta verkefni. Það er hins vegar ekki alltaf jafn einfalt að loka á það sem maður hefur upplifað.“
Pistill Sigurðar í heild sinni.
---
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗