Ísland leggur til fimm milljónir árlega
Ísland beitir sér fyrir því að dregið verði hratt úr notkun jarðefnaeldsneytis til þess að halda aftur af hlýnun jarðar og að ákvarðanir um loftslagsskuldbindingar byggi á vísindum í samningaviðræðum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP31) í Antalya í Tyrklandi. Þá hafa kynjajafnrétti og vernd mannréttinda verið áberandi í málflutningi Íslands.
Þetta kemur fram í tilkynningu um ráðstefnuna á heimasíðu Stjórnarráðsins.
„Hart hefur verið tekist á um lokaákvörðun og samkomulagstexta ráðstefnunnar og hafa viðræður dregist fram yfir áætluð ráðstefnulok. Ísland er meðal þeirra ríkja sem leggja ríka áherslu á að fjallað sé um mikilvægi þess að hverfa frá notkun jarðefnaeldsneytis í samkomulagstextanum. Fjöldi olíuframleiðsluríkja beitir sér gegn því,“ segir í tilkynningunni.
„Fjármögnun loftslagsaðgerða er jafnframt eitt helsta ágreiningsefnið. Þróunarríki kalla eftir auknu fjármagni, einkum til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga, en þróuð ríki hafa ekki viljað fallast á ný bindandi markmið og vísa meðal annars til þess að nýlega hafi náðst samkomulag um umgjörð fjármögnunarinnar.“
Hækki úr sjö í tíu milljónir króna
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sat ráðstefnuna í vikunni og tók þátt í fjölda viðburða.
„Rauður þráður í málflutningi hans var að hnattræn hlýnun og örar breytingar á þeim náttúrulegu kerfum sem gera jörðina okkar byggilega skapi öryggishættu fyrir þjóðir heimsins og ógni því sem okkur er kært,“ segir Jóhann Páll í tilkynningunni.
Ísland stóð þá ásamt Norrænu ráðherranefndinni og fleiri samstarfsaðilum fyrir alþjóðlegum viðburði um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC).
Fram kemur að þar hafi ráðamenn og leiðandi vísindamenn, meðal annars Johan Rockström, forstjóri Potsdam Institute for Climate Impact Research, Stefan Rahmstorf hafstraumafræðingur og Costas Kadis, framkvæmdastjóri sjávarútvegs- og hafmála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, rætt mikilvægi þess að vísindaleg þekking leiði ákvarðanir stjórnvalda og að brugðist verði við loftslagsáhættu áður en alvarlegar og hugsanlega óafturkræfar breytingar verða á loftslagskerfinu.
Á viðburði Evrópusambandsins um alþjóðasamstarfið, EU Ocean Eye International Alliance, tilkynnti Jóhann Páll jafnframt að Ísland myndi leggja fimm milljónir króna árlega til hnattræna hafathugunarkerfisins (GOOS) og að árlegt framlag Íslands til haffræðinefndar UNESCO (IOC) hækkaði úr sjö í tíu milljónir króna.
Jarðhiti fær aukna athygli
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að jarðhiti hafi fengið talsvert meiri athygli á ráðstefnunni að þessu sinni en undanfarin ár.
Á blaðamannafundi sem Jóhann Páll hélt með Simon Watts, orkumálaráðherra Nýja-Sjálands og fleiri samstarfsaðilum, var fjallað um hvernig efla megi alþjóðlegt samstarf um rannsóknir, tækniþróun og nýtingu jarðhita. Samstarfið byggir meðal annars á viljayfirlýsingu Íslands og Nýja-Sjálands frá COP30 í Brasilíu í fyrra og miðar að því að gera fleiri ríkjum kleift að nýta jarðhita sem áreiðanlegan og endurnýjanlegan orkugjafa.
Þá tók Ísland einnig þátt í Geothermal Ambition, viðburði IRENA (International Renewable Energy Agency) þar sem áhersla var lögð á að auka vægi jarðhita í orkuskiptum. Fjöldi ríkja á COP31 hefur sameinast um metnaðarfulla yfirlýsingu þar sem stefnt er að tólfföldun á afkastagetu jarðhita til raforku- og varmaframleiðslu á heimsvísu fyrir árið 2050.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
