Vegagerðin var við miklu hvassviðri

Innlent | mbl | 21.11.2026 | 9:43

Reiknað er með hviðum allt að 35 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum síðar í dag. mbl.is/Jónas Erlendsson

Reiknað er með hviðum allt að 35 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum síðar í dag frá um klukkan 18 og til miðnættis.

Eins á utanverðu Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli frá um klukkan 20 í kvöld og til hádegis á morgun og um tíma í fyrramálið utan til á Snæfellsnesi.

Þá verður hvasst á Reykjanesbraut, þvert á akstursstefnu, um tíma snemma í fyrramálið, að því er kemur fram í ábendingum til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab