Lathundur orð ársins?

Samfélagsmiðlar íslensks stjórnmálafólks eru alltaf undir smásjá og því sem þar fer fram gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina má í heild sinni sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Starfsfólk Alþingis er sérlega hrifið af orðunum lathundur og bandormur.

Starfsfólk Alþingis er sérlega hrifið af orðunum lathundur og bandormur. Samsett mynd/mbl.is/Hákon Pálsson/Unsplash/Pricilla Du Preez/Sebastien Lavalaye

Þorgerður spennt fyrir þjóðarhöll

Togga Gunn er ekkert eðlilega spennt fyrir nýrri þjóðarhöll hér á landi og eru blautir draumar hennar um slíka höll senn á enda því þjóðarhöll er loks í sjónmáli. Eða það var alla vega útlitið í byrjun vikunnar þangað til Íslenskir Aðalverktakar sprengdu upp ballið. Æ, æ og ó.
Það á náttúrulega bara ekki af henni elsku Þorgerði Katrínu að ganga. Kræst. Þjóðarhöllin í uppnámi, stöðugur flóttamannastraumur úr hennar sárþjáða flokki og ég veit ekki hvað og hvað. Þá var nú gott að eiga einn sérlega þægilegan og kurteisan Kristján Kristjánsson uppi í erminni. Jáááhhh!

Flóttamaðurinn úr Viðreisn

Já, flóttamannastraumurinn úr Viðreisn stal sem sagt senunni í vikunni og var lítið annað en maður að nafni Ingvar Þóroddsson í fréttum, bara rétt eins og Jón Gnarr þarna um daginn. En alla vega Ingvar sagði bæ og skellti á eftir sér hurðinni úr Viðreisn og gekk til síns heima algerlega á hreinum skóm, sko til Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur alltaf verið Sjalli, öll þjóðin vissi það. Verst geymda leyndarmál landsins.

Höfðinglegar móttökur

Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði viðbótinni vel og innilega og tók höfðinglega á móti hugrakka flóttamanninum. Fall eins er styrkur annars sagði einn góður maður einu sinni. Nei djók, hann sagði það ekki, ég er að ljúga. Þetta er samt helvíti góð lína. Er það ekki.

Mánudagurinn mikli

Þrátt fyrir að mánudagurinn hafi virst vera einhvers konar svona St. Ingvar's Day þá er staðreyndin önnur því það var dagur íslenskrar tungu. Meistararnir sem starfa svona bak við tjöldin á Alþingi, en er samt aðalfólkið, nýtti tækifærið og valdi sín uppáhaldsorð sem tengjast þinginu þar sem orðin bandormur og lathundur þóttu vinsælust. Árnastofnun segir bara „error error“ þegar þessum orðum er slegið upp.

Miðflokkurinn viti borinn

Miðflokkurinn gerði slíkt hið sama og er orðið vit orð sem Snúlli Másson kann vel að meta, vitlaust og vitgrannt fólk. Alltof mikið til af því.

Hlaupasjálfa í snjónum

Sjálfukóngurinn lét snjóhuluna sem hefur legið yfir götur síðustu daga ekki stoppa sig í að fara út að hlaupa. Ég ætla nú rétt að vona að hann hafi verið með mannbrodda á hlaupaskónum blessaður maðurinn. En hlaupasjálfu í snjónum tók hann, ekki ekki hvað.

Jóhann Páll og jarðhitinn

JP-orkumáladúddi er on fire þessa dagana. Vá, hvað sólin skín eitthvað skært á hann en hann fór með svakalega eldræðu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Það er sko hiti á klúbbnum! Aldrei verið jafnmikið talað um jarðhita og Ísland sko aldeilis komið á kortið. Vúhú! Geggjaður hann JP.

Mjúkur Gnarr

Jón Gnarr fór yfir allt litróf tilfinninganna í nýrri færslu á Facebook. Hann er svo mjúkur og humble. Dýrka það. Dýrka samt mest að hann hafi tekið það fram í færslunni að samband hans við Moggann hafi þroskast mikið. Þetta þykja mér sérlega falleg orð. Knús í þitt hús, Gnarrenburg.

Forláta núllið

Hey gæs, munið þið eftir þarna fína, fallega núllinu sem ríkisstjórnin teiknaði á blað um daginn og leit út fyrir að vera eftir leikskólabarn? Oh my god, þetta núll eldist ekkert eðlilega illa að mati Hildar Sverrisdóttur og Ásgeirs seðlabankastjóra og fleira fólks. Samt alltaf gaman að láta sig dreyma um hið fullkomna hallalausa núll.

Allt með kyrrum kjörum

Ása Berglind vakti hátt og snjallt athygli á því að hún ætti sko ekki annað eftir en að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Sem er bara allt í lagi. Ef uppáhaldsliturinn manns er rauður þá er uppáhaldsliturinn manns væntanlega ekki blár. En já, allt með kyrrum kjörum í Samfylkingunni undir herstjórn Kristrúnar. Svona á gera þetta.

Sverrir Bergmann „feikur“ á fimmtudaginn?

Hinn eini sanni Svessi hressi leysti Ásu Berglindi af hólmi við þingstörfin á GTA-Alþingi í vikunni en líklega hefur hann séð svolítið eftir því þegar hann uppgötvaði að nýi Grand Theft Auto leikurinn væri að koma út, ekki nema að hann hafi hringt sig inn „fake-ann“ á fimmtudaginn eins og spáð hafði verið að helmingur heimsbyggðarinnar myndi gera.

Bestu veislustýrurnar

Þegar María Rut og Ingileif eru ekki að stjórna landinu þá eru þær fengnar til að stjórna veislum. Þær eru bara svo góðar í að stjórna og svo eru þær líka skemmtilegar og sætar og fyndnar og allt.

Smelltu á spilarann hér að neðan til að nálgast nýjasta þátt Spursmála í heild sinni:

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab