Glænýtt jólalag úr ítölsku popplagi

Nína Solveig Andersen, eða tónlistarkonan Lúpína, semur tilraunakennda popptónlist.

Nína Solveig Andersen, eða tónlistarkonan Lúpína, semur tilraunakennda popptónlist. mbl.is/Ásdís


Jólalegt var um að litast í miðbænum og fimm stiga frost daginn sem blaðamaður hitti tónlistarkonuna Nínu Solveigu Andersen á vinnustofu hennar við Hafnarstræti. Nína Solveig notar listamannsnafnið Lúpína, sem gengur betur úti í heimi, en hún er að hasla sér völl á alþjóðavettvangi og treður upp víða um heim. Í litlu stúdíói í Hafnarstræti verða töfrarnir til. Þar situr Lúpína heilu og hálfu daga og semur á tölvu, en í tónlist Lúpínu skiptir röddin líka miklu máli.

Leik mér með röddina

Hvenær rann það upp fyrir þér að þú vildir verða tónlistarkona?

„Ég held það hafi komið smám saman. Mun fyrr en ég sagði það upphátt. Kannski þegar ég frétti af þessu námi, en ég þorði kannski ekki að segja það. Kennarinn minn þarna úti ýtti mér út í lagasmíðar og söng og mjög fljótlega komst ég að því að ég er með sterkar skoðanir á þessu öllu. Ég fann það líka þegar ég var að semja fyrir aðra eða vinna bak við tjöldin, að ég vildi fá mína hugmyndir í gegn,“ segir hún og brosir.

„Ég fann þá að ég þyrfti að vera listamaðurinn, í stað þess að vinna bak við tjöldin.“

Lúpína er að gera það gott erlendis.

Lúpína er að gera það gott erlendis.

Hvernig myndir þú lýsa þessum tónlistarheimi sem þú ert að skapa?

„Út frá tónlistarstíl myndi ég segja tilraunakennt popp. En mér líður eins og það sé mjög vítt hugtak sem lýsir ekki mínum tónlistarheimi nákvæmlega. Kannski er tónlistin draumkennd og ævintýraleg; mér finnst gaman að leika mér á mörkum raunveruleikans. Ég er með þennan klassíska bakgrunn og Dymbrá var mjög tilraunakennd hljómsveit og þaðan fór ég í þetta poppnám í Noregi. Mér líður eins og Lúpína sameini þetta allt; þarna mætast þessar stefnur. Ég vil ögra tónlistinni og hafa frelsi til að setja saman hluti sem hafa ekki endilega áður verið settir saman,“ segir Nína, en hún semur nánast alla tónlist á tölvu.

„Ég spila mikið á „synthann“, en ég hef kennt sjálfri mér á píanó þótt ég sé enginn Víkingur Heiðar,“ segir hún og hlær.

„Svo tekur tölvan það upp og endurspilar eða „lúppar“ og þannig bý ég til tónlistina. Þetta eru allt fyrirframákveðnar útsetningar sem ég spila á sviðinu. Ég er í raun eins manns band.“

Áhuginn er erlendis

Nína flutti heim fyrir ári og finnst gott að tilheyra aftur íslensku tónlistarsenunni. Hún segist reyna að vinna eingöngu að sinni tónlist, en tekur vaktir í plötubúðinni Smekkleysu af og til.

„Ég er líka heppin að fá að búa í kjallaranum hjá mömmu og pabba. Vinnan er alltaf að verða meiri og meiri og ég hef varla tíma í annað,“ segir Nína, en launin segir hún aðallega koma frá framkomu á tónleikum og tónlistarhátíðum. Eins fær hún laun frá streymisveitum og sölu á plötum og varningi.

Lúpína kemur mikið fram, sérstaklega á erlendri grundu.

„Það er mjög áhugavert, en þegar ég var að byrja að gera tónlist lagði ég mikla áherslu á markaðssetningu á samfélagsmiðlum og póstaði mikið á TikTok. Eitt lagið mitt, Ástarbréf, fór á flug út um allan heim, mest í Bandaríkjunum og Evrópu. Það er komið vel yfir milljón hlustanir á Spotify og það opnaði dyr fyrir mér inn á erlendan markað. Það er markmiðið; að vera á erlendum markaði,“ segir hún.

„Ég finn mikinn mun á því hvernig fólk heyrir tónlistina hér heima og erlendis. Útlendingar eru með eitthvert Íslandsblæti og ég passa inn í það box,“ segir Nína og að Björk og Laufey hafi rutt brautina fyrir íslenskar tónlistarkonur. Á þessu ári hefur hún spilað mikið í Frakklandi, Þýskalandi og víða í Bandaríkjunum.

Ítalskt lag um afbrýðisemi

Hvað er fram undan?

„Í lok næsta árs kemur svo út ný plata,“ segir Nína, en Lúpína stefnir á fjölda tónleika víða um heim en eins vinnur hún mikið við að útsetja og taka upp fyrir aðra tónlistarmenn, sérstaklega í Noregi.

„Ég er að skrifa næstu plötu og svo eru jólatónleikar í Fríkirkjunni 9. desember með Róshildi, en við vorum að gefa út jólalag sem heitir Þú töfrar jólin. Við ætlum að taka alls konar klassísk jólalög í okkar útsetningum og svo spilum við eitthvað af okkar eigin lögum,“ segir hún.

Róshildur og Lúpína gerðu saman jólalag.

Róshildur og Lúpína gerðu saman jólalag. Ljósmynd/Nikulás Tumi Hlynsson

„Það er skemmtileg saga á bak við jólalagið. Á Íslandi hefur verið hefð að taka ítölsk popplög og gera úr þeim jólalög. Við gerðum það og völdum ítalskt lag sem hefur ekkert með jólin að gera og sömdum við það íslenskan texta. Við þurftum að fá leyfi og höfðum samband við áttræðan ítalskan poppara sem heitir Bobby Solo,“ segir Nína, en Bobby var ein stærsta poppstjarna Ítalíu á sjöunda áratugnum og gjarnan kallaður ítalski Elvis Presley vegna útlits síns og söngstíls. Hann er enn starfandi í tónlist, kominn á níræðisaldur.

„Lagið sem við völdum fjallar um ást og afbrýðisemi og hefur ekkert með jól að gera. Ég veit ekki hvað það er, en mörg ítölsk lög hljóma eitthvað svo jólalega. Ég veit ekki hvaða furðulega tenging er á milli ítalskra popplaga og íslenskra jólalaga! Við notum ekkert af hans upptöku heldur gerðum alveg nýja. Við leyfðum Bobby að heyra lagið og honum fannst það flott,“ segir Nína og hlær.

„Lagið hans fær nýtt líf sem íslenskt jólalag!“

Ítarlegt viðtal er við Lúpínu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab