„Reykskynjarinn er ódýrasta lífsbjörg okkar“
Árlegt eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst miðvikudaginn 18. nóvember. Að þessu sinni var því ýtt úr vör í Grunnskóla Eskifjarðar þar sem slökkviliðsmenn heimsóttu þriðju bekkinga og fóru yfir mikilvægi eldvarna með aðstoð Orra óstöðvandi og Möggu Messi.
Ingvar Georg Georgsson, slökkviliðsstjóri í Fjarðabyggð, var meðal þeirra sem komu í heimsókn. Blaðamaður ræddi við hann um átakið og hvað skiptir mestu máli þegar kemur að eldvörnum á heimilum.
„Þetta átak hefur staðið í tugi ára. Áður vorum við með verkefni sem hét Logi og Glóð en nú höfum við fengið Orra og Möggu til liðs við okkur og erum með fræðsluefni fyrir krakkana. Við heimsækjum skóla víðs vegar um landið og höldum stutta fræðslu fyrir þriðju bekkinga. Við förum yfir eldvarnir með þeim, svo fá börnin að horfa á teiknimynd með Orra óstöðvandi og Möggu Messi og í framhaldinu er haldin rýmingaræfing,“ segir Ingvar. Hann segir rýmingaræfinguna í Grunnskóla Eskifjarðar hafa gengið vel. Allir nemendur og kennarar tóku þátt og farið var eftir vel skipulagðri rýmingaráætlun.
Það var mikið fjör í Grunnskóla Eskifjarðar þegar árlegu eldvarnarátaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna var ýtt úr vör. Ljósmynd/Albert Kemp
Hann segir börnin sýna fræðslunni mikinn áhuga og miðla því sem þau læra til foreldra sinna.
„Þau fara heim með getraunablað og fara yfir eldvarnir á heimilinu með foreldrum sínum. Saman svara þau spurningunum og senda svörin til Landssambandsins. Þá geta þau unnið til verðlauna, sem þeim þykir mjög spennandi.“
Spurður hvers vegna þriðju bekkingar verði fyrir valinu segir Ingvar fræðsluna í raun hefjast strax í leikskóla.
„Við byrjum á að ræða við útskriftarárganginn í leikskólum og hittum börnin svo aftur í þriðja bekk. Það er því ákveðin stígandi í þessu. Á þessum aldri eru þau mjög meðtækileg fyrir fræðslunni og fara með hana heim,“ segir Ingvar.
„Við höfum heyrt frá foreldrum að eftir fræðsluna fari krakkarnir yfir allt heimilið: Hér á að vera reykskynjari, hér slökkvitæki og hér eldvarnarteppi. Svo þurfi líka að vera flóttaleið. Þau eru því okkar eldvarnarfulltrúar, enda komast slökkviliðin ekki inn á hvert einasta heimili á landinu.“
Þannig segir hann fræðsluna berast inn á heimilin og hvetja fjölskyldur til að fara saman yfir eldvarnir.
Magga Messi og Orri óstöðvandi hjálpa slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum að fræða börnin um eldvarnir. Ljósmynd/Aðsend
Of fáir reykskynjarar á heimilum
Ingvar hefur starfað í slökkviliði frá árinu 1989 og verið slökkviliðsstjóri í Fjarðabyggð síðastliðin tvö ár. Hann býr því að áratuga reynslu af eldvörnum og slökkvistarfi.
Hvað er helst ábótavant í eldvörnum á heimilum og hvað hvetjið þið börnin til að skoða með foreldrum sínum?
„Það eru of fáir reykskynjarar á heimilum. Við hvetjum börnin til að fylgja því eftir og skoða með foreldrum sínum hvort eldvarnir heimilisins séu í lagi. Við förum vel yfir efnið með þeim og þau fá að spyrja um allt frá A til Ö. Við sýnum þeim reykskynjara, eldvarnarteppi og slökkvitæki og svörum spurningunum á þeirra máli.“
Þriðju bekkingar í Grunnskóla Eskifjarðar fengu að spyrja slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn um allt sem þeim lá á hjarta. Ljósmynd/Albert Kemp
Ingvar leggur mikla áherslu á mikilvægi reykskynjara og segir þá eiga heima í hverju herbergi heimilisins.
„Reykskynjarinn er ódýrasta lífsbjörg okkar. Þegar ég byrjaði í slökkviliðinu var kannski enginn reykskynjari á heimilinu. Síðan fór fólk að setja upp einn og taldi sig þá hafa gert sitt. En nú erum við með sífellt fleiri raftæki inni í herbergjunum, eins og tölvur, síma og sjónvörp. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa reykskynjara í hverju herbergi og við sjáum að þeim fer fjölgandi.“
Hversu oft þarf að skipta um reykskynjara?
„Það er gott að skipta um reykskynjara á fimm til tíu ára fresti. Í þeim sem eru með útskiptanlegum rafhlöðum er gott að skipta um þær einu sinni á ári, til dæmis rétt fyrir jólin. Við hvetjum fólk til að nýta aðventuna til að fara yfir eldvarnir heimilisins, enda fylgja þessum árstíma fleiri hættur.“
Hvernig veit maður hvenær er kominn tími til að skipta um reykskynjara?
„Við þekkjum auðvitað flest pípið í reykskynjurum sem ganga fyrir batteríum. Ég hef sjálfur tamið mér að skrifa ártalið á þá með tússpenna þegar ég set þá upp. Þá er auðvelt að taka skynjarann niður og sjá hversu gamall hann er, með það í huga að skipta þurfi um hann á fimm til tíu ára fresti.“
Það vakti mikla lukku þegar nemendur í Grunnskóla Eskifjarðar fengu að skoða slökkviliðsbíl og sjúkrabíl í tengslum við eldvarnarfræðsluna. Ljósmynd/Albert Kemp
Kertaljósin kalla á aðgát
Aðventan nálgast nú óðfluga og fólk er farið að kveikja á kertum í dimmunni. Seríur eru komnar í marga glugga og sumir jafnvel búnir að setja upp jólatréð. Sjáið þið aukningu í útköllum á þessum árstíma og hvað getur fólk gert til að draga úr eldhættu?
„Já, við sjáum smá aukningu á þessum árstíma og þá tengist það helst kertum í skreytingum. Sem betur fer er þó farið að færast í aukana að fólk noti LED-ljós í þær,“ segir Ingvar og bætir við:
„Það er líka gott að fara vel yfir seríurnar. Ekki setja gamlar og slitnar jólaseríur á tréð, þar sem vírarnir eru kannski orðnir hálfslitnir og geta hitnað eða neistað. Þetta eru helstu hætturnar, ásamt því að fólk kveikir almennt meira á kertum á þessum árstíma.“
Beðinn um gott ráð fyrir lesendur sem vilja bæta eldvarnir heima hjá sér strax í dag er Ingvar fljótur til svars.
„Númer eitt, tvö og þrjú er að vera með reykskynjara í hverju herbergi. Svo á að vera slökkvitæki á hverju heimili, þar sem það sést og auðvelt er að grípa til þess. Það á ekki að fela það inni í skáp. Það er engin skömm að því að hafa slökkvitæki uppi á vegg, það sýnir bara að fólk hugsar um eldvarnirnar hjá sér.
Svo er það eldvarnarteppið sem getur nýst ef kviknar í við matseld eða í jólaskreytingu. Þessi þrjú tæki eiga að vera á hverju heimili: reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi.“
Ingvar vill að lokum minna alla á að huga að eldvörnum heima hjá sér:
„Til allra heimila á Íslandi: Hugið að eldvörnum!“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/34/1693481.jpg)



