Pistill: Boðflennur eða búhnykkur?

Úr ólíkum áttum
Pistill Árna Helgasonar úr Sunnudagsblaðinu

Í vikunni var dreift á Alþingi frumvarpi um innviðagjald á Gullna hringnum. Þetta er hluti af skatta- og gjaldapakka ríkisstjórnarinnar á ferðaþjónustuna sem nemur, ásamt hækkun virðisaukaskatts á baðlón og hækkun kílómetragjalds, alls um 11 milljörðum. Rökin eru fyrst og fremst markmið um hallaleysi í fjárlögum en svo er hnýtt við að ferðamenn valdi miklu álagi á innviði landsins. Samt fer afrakstur gjaldtökunnar beint í stóra hítina til ríkissjóðs en ekki í afmörkuð uppbyggingarverkefni.

Hættan við svona brattar hækkanir með stuttum fyrirvara er að við drögum úr samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Við erum í samkeppni við önnur ferðaþjónustulönd, eins og t.d. Noreg og Skotland. Ferðir eru gjarnan seldar með löngum fyrirvara og gjalda- og skattahækkanir með stuttum fyrirvara geta því valdið fyrirtækjum í greininni miklu tjóni. Á endanum munu hækkanirnar leita út í verðlagið en þar þurfum við líka að gæta okkar, því þótt ánægja ferðamanna með dvöl sína hér á landi sé að jafnaði mikil þá er hátt verðlag gjarnan nefnt sem helsti mínusinn.

Ferðaþjónustan hér á landi tók mikinn kipp á árunum eftir hrun og átti stóran þátt í að koma okkur á lappirnar aftur. Síðan þá hefur verið farið í mikla og kostnaðarsama uppbyggingu, hvort sem það er í formi baðlóna, gististaða, veitingastaða eða annarrar afþreyingar. Ferðaþjónustan er orðin ein af okkar stærstu og verðmætustu atvinnugreinum, skapar gjaldeyristekjur og skattspor greinarinnar er um 200 milljarðar á ári. Eins og önnur fyrirtæki þá glímir ferðaþjónusta við erfitt árferði, háa vexti og verðlag og tímasetning þessara hækkana er því sérstaklega óheppileg.

Innviðir í kringum vinsæla ferðamannastaði, s.s. bílastæði og salerni, hafa verið byggðir upp með beinni gjaldtöku þannig að sá borgar sem nýtir. Á næsta ári fáum við um 2,2 milljarða í sértekjur í gegnum þjóðgarða og á öðrum stöðum hafa einkaaðilar séð um þessa uppbyggingu. Þar fyrir utan er innheimtur gistináttaskattur og gjöld af skemmtiferðaskipum sem tryggja okkur um 4,5 milljarða á ári.

Samt telur ríkisstjórnin þörf á almennri gjaldtöku ofan á þetta allt saman. Sýnin sem birtist í rökstuðningi frumvarpsins er að ferðamenn séu eins og boðflennur sem valdi álagi á náttúru og samfélag. Raunin er þó sú að við markaðssetjum Ísland og íslenska náttúru einmitt til þess að hvetja ferðamenn til að koma til landsins.

Við verðum að gæta að því að vera ekki eins og gestgjafinn sem býður í veislu og leggur hart að gestunum að mæta en setur svo upp mæðusvip þegar veisluhöldin hefjast yfir því hvað þetta sé nú allt saman mikil vinna og tilstand

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab